157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[15:23]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka framsögumanni fyrir sitt erindi og ánægjulegt samstarf í nefndinni, í þessu máli eins og öllum öðrum, og ágæta yfirferð yfir nefndarálitið sjálft. Hér er um umtalsverða breytingu að ræða, sameiningu allra sýslumannsembættanna í eitt. Það á sér auðvitað nokkurn aðdraganda en unnið hefur verið að umbótum í rekstri og þjónustu sýslumannsembættanna undanfarinn áratug. Það vakna auðvitað upp ýmsar spurningar um meðferð máls eins og þessa, hvort gengið sé of langt í þeim sveigjanleika sem frumvarpið mælir fyrir um. Í því felst hálfgert eyðuframsal varðandi skipulag embættisins og þess reksturs sem þar á að fara fram. Löggjöfin er þannig miklum mun hlutlausari gagnvart þessum þáttum en lagt var upp með, til að mynda í frumvarpi þáverandi dómsmálaráðherra er fjallaði um mál svipaðs efnis.

Það sem ég hafði áhuga á að ræða við hv. þingmann um og spyrja hann út í er einmitt þessi ótti sem hann kom inn á í ræðu sinni, sem ég held að sé ekki ástæðulaus, að tilhneigingin sé sú að höfuðborgarsvæðið sogi til sín störfin í ríkari mæli en efni eru til. Ég vísa í því sambandi til umsagnar Byggðastofnunar sem getur þess að 70% starfa landsins, eða hins opinbera, eru á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir að þar búi einungis 64% landsmanna.

Mig langaði til að spyrja hv. þingmann út í þessi atriði og þá sérstaklega breytingartillögur Jóns Gunnarssonar sem voru lagðar inn til nefndarinnar að lokinni 1. umræðu og var einmitt ætlað að setja nánari skorður í lög til að koma í veg fyrir að störfin sogist hingað til höfuðborgarsvæðisins.