dómstólar.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir máli um sameiningu héraðsdómstóla. Þetta frumvarp er nokkuð mikið að vöxtum, upp á 35 blaðsíður með þeim gögnum sem því fylgja, greinargerð og skýringum, og var unnið á sínum tíma, 2022, í ráðuneytinu þannig að frumvarpið er mjög vandað að allri gerð og um það náðist í undirbúningsvinnu nokkuð víðtæk sátt meðal helstu sérfræðinga okkar á þessu sviði.
Það kom út 2020 skýrsla Ríkisendurskoðunar um stjórnsýslu dómstólanna sem unnin var að beiðni Alþingis á grundvelli laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Í þeirri skýrslu var m.a. fjallað um mögulega sameiningu héraðsdómstóla. Þar var vísað til mats dómstólasýslunnar að sameining héraðsdómstóla væri skilvirkasta og árangursríkasta leiðin að aukinni samræmingu innan dómskerfisins. Með henni mætti auka hagkvæmni með meiri samvinnu og samlegð en að óbreyttu væri ekki þörf á fjölgun starfsmanna héraðsdómstólanna. Það má skjóta því hér inn í að það var sannfæring þeirra sem unnu að þessu frumvarpi og mín sem ráðherra á þeim tíma að á endanum, með þeirri hagræðingu sem fengist í vinnubrögðum, myndum við geta fækkað dómurum á héraðsdómstólastiginu eftir að það væri búið að ná upp góðum dampi með sameinuðu kerfi.
Ríkisendurskoðun taldi á þessum tíma að skoða þyrfti gaumgæfilega hvort fækka ætti héraðsdómstólum með sameiningum. Fara þyrfti fram mat á því hver fjárhagsleg samlegð yrði og hvernig sameining gæti styrkt stjórnsýslu dómstólanna. Í þessu sambandi væri vert að hafa í huga að við fámennustu héraðsdómstóla landsins starfaði að jafnaði einn dómari sem jafnframt væri dómstjóri. Sá starfsmaður væri á vakt allt árið um kring en að jafnaði væru fá útköll. Dómstjórum væri falið ákveðið eftirlitsvald í lögum um dómstóla en í þessum tilfellum væri þeim gert að sinna eftirliti með eigin störfum.
Það var svo árið 2022 sem ég skipaði starfshóp um sameiningu héraðsdómstóla og sá hópur tók til skoðunar ábendingar Ríkisendurskoðunar sem fjallað var um hér áðan og tók ákvörðun um að ráðast skyldi í sameiningu átta héraðsdómstóla landsins í einn. Forsenda slíkrar sameiningar var sú að dómstóllinn hefði starfsstöðvar á landsbyggðinni þar sem héraðsdómstólarnir væru nú staðsettir. Horft var til þess að efla og styrkja þessar starfsstöðvar með nýjum verkefnum og byggja þar á verkefninu um svokallaða réttarvörslugátt sem er hugbúnaður um stafræna meðferð dómsmála. Með breyttu fyrirkomulagi héraðsdómstólanna má ætla að ná megi fram einfaldari og skilvirkari stjórnsýslu fyrir dómstólana og auknu eftirliti með henni. Þá er jafnframt gert ráð fyrir að fjárframlög og mannauður dómstólanna muni nýtast betur og aukið hagræði nást við meðferð dómsmála, borgurunum til hagsbóta. Starfshópurinn skilaði svo skýrslu 12. desember 2022 sem þetta frumvarp byggist að meginþræði á og þeim tillögum um breytingar á lögum um dómstóla sem henni fylgdu. Starfshópurinn taldi í skýrslunni að margvíslegur ávinningur yrði af sameiningu fyrir dómstólana en ekki síður fyrir þá sem sækja þjónustu til þeirra og eru í kafla greinargerðarinnar raktar helstu breytingartillögur hópsins o.s.frv.
Í greinargerð segir, með leyfi forseta:
„Fyrir liggur að stafræn umbreyting er á meðal stærstu og mikilvægustu verkefna dómskerfisins á næstu árum. Liður í henni er notkun hugbúnaðar sem nefnist Réttarvörslugátt og miðar einkum að því að koma á stafrænum samskiptum milli stofnana réttarvörslukerfisins. Í því felst að sem flest sakamál og einkamál berist til dómstólanna á stafrænu formi. Breytingarnar munu að líkindum spara aðilum dómsmála, vitnum og lögmönnum, fjármuni og tíma og bæta verulega aðgengi borgaranna að dómstólum. Ljóst þykir að þessi vegferð kallar á talsverðar breytingar á réttarfarslöggjöf.“
Sem dæmi um þetta vil ég nefna að á þessum tíma fór ég í heimsókn hjá dómstólunum úti á landi og þá er mér minnisstætt að ég var í heimsókn á Sauðárkróki þar sem er einn dómari, sem er einnig dómstjóri, og hann var að stíga út úr dómhaldi. Þar var sakborningur staddur vestur á Snæfellsnesi, á Kvíabryggju, og verjandi á skrifstofu sinni í Reykjavík. Þetta er breytingin. Ef við hefðum ekki verið búin að opna á þetta og heimila þetta, þá hefði þurft að keyra sakborning í þessu máli í fylgd lögreglumanna norður á Sauðárkrók. Lögmaðurinn hefði þurft að koma sér norður á Sauðárkrók og taka þar þátt í stuttu dómhaldi og síðan til baka. Þetta hefði tekið daginn hjá báðum þessum aðilum. Það var ekki síst með tilliti til þessa að við ákváðum að fara í þessa vegferð.
Frá árinu 1992 hafa verið starfræktir átta héraðsdómstólar hér á landi. Ef litið er til fjölda starfsmanna má skipta þessum dómstólum í þrjá flokka. Í fyrsta flokkinn falla Héraðsdómur Reykjavíkur með 51,5 stöðugildi, þar af 24 dómara, og Héraðsdómur Reykjaness með 19 starfsmenn, þar af 10 dómara. Þetta eru nokkuð stórar einingar í þessu umhverfi. Í annan flokk falla Héraðsdómur Norðurlands eystra og Héraðsdómur Suðurlands með fimm stöðugildi hvor, þar af tvo dómara. Í þriðja flokkinn falla þrír héraðsdómstólar með tvö stöðugildi, þar af einn dómara, og sá fjórði með þrjú stöðugildi, þar af einn dómara.
Hugmyndin með þessu var ekki að fækka starfsstöðvum og er ekki að fækka starfsstöðvum dómstólanna heldur einmitt, á grundvelli nýrrar tækni og heimilda þar sem við getum nýtt miklu betur þann mannskap sem er á starfsstöðvunum úti á landi, ætluðum við og framtíðin var sú að fjölga dómurum á þessum starfsstöðvum úti á landi og fækka hér á höfuðborgarsvæðinu. Það er alveg raunhæft að gera þetta vegna þess að þegar þú ert kominn með einn dómstól þá ertu kominn með einn dómstjóra sem hefur það verk með höndum að nýta starfsmennina, dómarana og starfsstöðvarnar sem best og sendir þá mál þangað sem við á og þess vegna milli landshluta. Á grundvelli nýrrar tækni, með gáttinni og breyttum heimildum geta menn verið að vinna mjög mikinn fjölda mála.
Það gefur augaleið að það er ósköp veik stofnun sem er með tvo til þrjá ríkisstarfsmenn. Alveg eins og með sýslumennina sem við vorum að ræða hér áðan þá falla margir þessir héraðsdómstólar, sennilega allir nema kannski Héraðsdómur Reykjavíkur, undir það að kallast örstofnanir. Það á við um mörg sýslumannsembættin líka að þetta eru svokallaðar örstofnanir. Þetta á sennilega við um átta sýslumannsembætti og fimm héraðsdómstóla. Það hefur ítrekað komið fram í skýrslum frá Ríkisendurskoðun og fleiri aðilum og ítrekað komið fram í skilaboðum frá fjármálaráðuneytinu og reyndar frá fleiri ráðuneytum til þingsins að það sé mjög mikilvægt að fækka þessum örstofnunum. Það hafa allir tekið undir það. Þetta hefur meira að segja, ef ég man rétt, verið í stefnuskrá ákveðinna ríkisstjórna að þessum örstofnunum skuli fækka. Þess vegna er það svolítið magnað þegar svona mál koma þar sem við getum slegið þessar tvær flugur, sýslumannsembættin og héraðsdómstólana, að þá gætum við verið að fækka um fjórðung af þessum svokölluðu örstofnunum, bara með þessum tveimur breytingum. Auðvitað er það alveg klárt að það er vegferð sem við þurfum að fara í, það hafa allir verið sammála um að það verði að gera það. En svo koma þessi mál, hagræðingarmál, hérna inn í þingið og þá myndast oft um þau einhver ágreiningur. Þá komum við að því, virðulegur forseti, sem menn voru að velta fyrir sér hér áðan varðandi sýslumannsmálið og þetta eru keimlík mál. Menn koma sem sagt með einhverja hagsmuni og einhverjar áhyggjur af fækkun starfa úti á landi o.s.frv. Og, eins og hefur komið fram, sporin hræða. En þess vegna er svo mikilvægt, alveg eins og ég kom inn á í umræðunni um sýslumannsfrumvarpið áðan og það sama á við í þessu máli, þetta er nákvæmlega sama uppleggið hér, að við setjum grein inn í frumvarpið þar sem er talað um lágmarksáhöfn á hverjum stað, lágmarksmannskap. Við ætluðum að fjölga dómurum eða dómarafulltrúum á þessum stöðum þar sem var bara einn dómari og ná fram, með einum dómstjóra, þessari nýtingu og meira að segja embætti sem voru auglýst fyrir héraðsdóm á þessum tíma — við vorum strax farin að gera ráðstafanir með því að segja að starfsstöðin gæti breyst. Það voru skilyrðin fyrir ráðningunni.
Þetta þarf auðvitað einhverja aðlögun en þetta er hægt. Þarna erum við að tryggja þessa þjónustu í öllum landshlutum og við erum að efla hana á sama tíma og við erum að hagræða og nýta miklu betur mannskapinn sem við erum með. Á endanum er ekki ólíklegt að þetta hefði getað leitt til fækkunar dómara við héraðsdóm. Tíminn yrði auðvitað að leiða það í ljós en það var mat manna að það væri mjög líklegt. Og þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig það er fyrir svona örfyrirtæki í ríkisrekstri að vera með einhvern grunn sem þarf varðandi starfsmenn, fjárhagsáætlun o.s.frv., í stað þess að vera með þetta allt á einum stað. Vera með dómstjóra á þessum stöðum þar sem einn er dómstjóri yfir sjálfum sér. Lögmæti þess má alveg draga í efa og hagræðingin er alveg augljós. Það var gert ráð fyrir því í frumvarpinu, af því að það er hluti af launakjörum manna að vera dómstjórar, þeir hafa einhverjar aukagreiðslur fyrir það, að breytingarnar varðandi launakjörin yrðu leiddar inn á einhverjum tíma, sem er ekkert óeðlilegt, til þess að mynda um þetta frekari sátt.
Nú er þetta lagt fram sem þingmannamál, fullbúið frumvarp sem unnið var náttúrlega af lögfræðingum ráðuneytisins á sínum tíma og hefur verið staðfært til dagsins í dag, var unnið af aðstoðarmönnums mínum og dómstólasýslunni og öðrum úr kerfinu. Eins og ég sagði áðan þá var búið að ná, eftir mjög mikla vinnu, nokkuð víðtækri sátt um þetta mál. Það eru auðvitað einhverjir sem missa aðeins spón úr aski sínum sem eflaust hafa við þetta einhverjar athugasemdir. En það verður stundum að horfa á stóru myndina þegar að því kemur. Ég vonast til þess að þetta mál hljóti brautargengi í þinginu og verði afgreitt. Það er svo sem ekki algengt með þingmannamál. En hérna er um mikið framfaramál að ræða sem ég held að við flest eigum að geta verið sammála um. Það getur vel verið að það sé einhver flokkur eða einhverjir þingmenn sem ekki eru alveg sáttir. En það er mjög auðvelt að rökræða þetta og færa fyrir því sterk rök að þetta verði ekki bara héraðsdómi til framdráttar heldur einnig hinum dreifðu byggðum þar sem það er alveg hreinn ásetningur í þessu frumvarpi að styrkja starfsstöðvarnar sem eru úti á landi.