dómstólar.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir framsögu á þessu máli sem er allrar athygli vert. Eins og fram kom í ræðu hv. þingmanns var frumvarpið unnið að grunninum til í dómsmálaráðuneytinu með allri þeirri umgjörð sem slík mál fá og má sjá á greinargerðinni að málið er greinilega unnið í víðtæku samráði við mjög marga. Þess vegna er þetta frumvarp allrar athygli vert og ég tek undir það sem hv. þm. Jón Gunnarsson sagði hérna áðan varðandi meðferðina í þinginu.
Nú verður þessu máli væntanlega vísað til allsherjar- og menntamálanefndar þar sem sá sem hér stendur situr og við munum koma þessu hratt í umsagnarferli. Það verður áhugavert að sjá og heyra þær umsagnir sem koma um þetta mál. Ég hef sagt það áður í þessum ræðustóli varðandi þingmannamál að mér finnist miður að sagan sýni okkur að í þingstörfunum gefist lítill tími til að vinna með þingmannamálin á sama hátt og stjórnarfrumvörpin, að þau fái góða umfjöllun í nefndunum. En ég vona að allsherjar- og menntamálanefnd fái tækifæri til að fjalla um þetta mál þar. Þarna er verið að tala um eflingu á ákveðnum störfum, sameiningu og hagræðingu sem er auðvitað eitt af því sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur talað fyrir. Það er full ástæða til að taka þetta mál fyrir og skoða vel.
Mig langaði að beina spurningu til hv. þingmanns, herra forseti, er varðar það þegar sameiningin er orðin af því við höfum verið að ræða hættu á leka á störfum. Þegar við erum að tala um litlu starfsstöðvarnar, þó að þær verði við slíka sameiningu hluti af stærri heild, hvort hv. þingmaður hafi áhyggjur af litlu starfsstöðvunum, t.d. Héraðsdómi Vestfjarða þar sem starfa eingöngu tveir. Hvort það sé hætta á því raunverulega, þegar þetta er orðið hluti af einhverri stærri starfsemi, að það sé einfaldara að senda dómara einhvers staðar annars staðar að til að sinna málum þar eða eitthvað slíkt.