157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

dómstólar.

39. mál
[18:58]
Horfa

Flm. (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil bara nefna það sem mér láðist að nefna áðan, að vísa málinu til allsherjar- og menntamálanefndar. Ég hef ekki áhyggjur af þessu eins og lagt er upp með í þessu frumvarpi, þetta var rætt svolítið. Það á að vera þannig búið um hnútana að það sé tryggt að þeir sem starfa við dómstólinn séu þá búsettir á því svæði þannig að þeir séu alltaf til taks. Það er mikilvægt og ég held að þetta fyrirkomulag, með sameiningunni og fjölgun starfsmanna á þessum starfsstöðvum þar sem við flytjum til frá fjölmennari svæðunum yfir á þessi fámennari svæði, þegar þú ert kominn með fleiri starfsmenn og löglærða, hvort sem það er fulltrúi dómara eða jafnvel tveir dómarar, á þessa staði þá ertu kominn með miklu áhugaverðari vinnustað fyrir lögfræðingana sem í þessu starfa. Það er ósköp einmanalegt að vera eini dómarinn á einhverjum stað úti á landi og þurfa í einhverjum málum að vera í sambandi við kollegana í gegnum síma eða fjarfundi eða eitthvað slíkt til að fara yfir og diskútera mál. Þá ertu kominn með öflugri starfsstöð sem er að mínu mati eftirsóknarverðara að vinna á.