157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

dómstólar.

39. mál
[19:00]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir andsvarið. Mig langaði að fara aðeins í annan vinkil í mínu seinna andsvari. Ég er að velta fyrir mér — það getur verið að það komi fram í greinargerðinni, ég hef bara misst af því þegar ég las hana — varðandi starfsstöðvar sem þar eru nefndar og eru miðaðar við sveitarfélögin, eins kemur fram í 1. gr. Mig langar að spyrja annars vegar hvort það hafi komið til skoðunar á sínum tíma að miða starfsstöðvar þessara héraðsdómstóla, samkvæmt þessari tillögu, við lögregluembættin. Ég tek sem dæmi að Höfn í Hornafirði tilheyrir héraðsdómi sem sér um Austurland á meðan Hornafjörður fellur undir umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi. Hins vegar vildi ég spyrja hvort eitthvað hafi verið rætt í vinnunni varðandi Vestmannaeyjar. Nú er þetta 5.000 manna bæjarfélag sem býr oft við erfiðar samgöngur og þarf að færa þar handtekna menn fyrir dómara sem er staðsettur á Selfossi. Hvort menn hefðu skoðað það með þessari sameiningu hvort hugsanlega væri hægt að koma upp starfsstöð í Vestmannaeyjum og jafnvel einhver verkefni sem hægt er að flytja þangað?

Það eru þessi tvö dæmi; Vestmannaeyjar annars vegar og hins vegar hvort hefur verið horft til þess að tengja þetta saman við landsvæði og umdæmi lögreglustjóranna.