157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

ráðstöfun útvarpsgjalds.

61. mál
[19:12]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir framsögu hans á þessu máli. Það mun koma til okkar í allsherjar- og menntamálanefnd þar sem við munum vinna málið. Mig langaði aðeins að kanna hug flutningsmanns gagnvart því hvort hann sæi fyrir sér, ef þetta mál myndi ná fram að ganga, einhvers konar hömlur á því hverjir gætu fengið nefgjaldið ef við værum að ráðstafa því. Þyrfti að uppfylla einhverjar ákveðnar kröfur, væru einhverjir skilmálar eða væri þetta almennt bara skilgreining á fjölmiðlum og mætti velja? Ég meina þá hvort líta ætti til þess hlutverks sem Ríkisútvarpið hefur núna í íslensku samfélagi og hvort flutningsmaður teldi að slík skilgreining þyrfti að ná utan um viðkomandi fjölmiðla eða hvort það ætti að vera algjörlega frjálst. Hver er hugur flutningsmanns gagnvart þessu?