ráðstöfun útvarpsgjalds.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni andsvarið. Þessi spurning hefur komið upp áður í samhengi við þetta mál og er sanngjörn og eðlileg. Þó að ég sé talsmaður þess að við ættum að leggja niður fjölmiðlanefnd þá er t.d. ein fær leið. Hún væri sú að miða við skilgreiningu þá sem þar er viðhöfð hvað varðar umfang og gerð þeirra miðla sem væru til þess bærir að móttaka styrk sem þennan. Það er auðvitað hægt að hafa þetta algjörlega opið. Ég hef í sjálfu sér ekki miklar áhyggjur af þeirri útfærslu. Ég lít á það sem tæknilegt útfærsluatriði, hvort sem hv. nefnd hefði skoðun á því eða hvort það yrði sett í hendur ráðherra þess tíma. Stóra atriðið er þessi prinsippákvörðun, að leyfa almenningi að ráðstafa hluta útvarpsgjaldsins til þeirrar gerðar fjölmiðlunar sem viðkomandi vill styðja við, t.d. héraðsfréttablöð eins og Skessuhorn, Bæjarins besta, Austurglugginn eða Víkurfréttir, það er hægt að telja þau öll upp landið um kring. Svo má spyrja hvort þarna væru til að mynda einhverjir vefmiðlanna sem eru sérhæfðir á ákveðnum stað eða einhver hlaðvarpanna. Ég hef ekki áhyggjur af því og ég held að svona í fyrsta kastið væri skynsamlegt að hafa þetta opið heldur en lokað. Ég ítreka að það skiptir meira máli að taka þessa prinsippákvörðun heldur en að njörva sig alveg niður við tiltekna útfærslu á þessu stigi málsins.