ráðstöfun útvarpsgjalds.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir svarið. Mér þykir þetta nefnilega áhugavert. Í mínum huga ætti það ekki að vera prinsipp í sjálfu sér að ríkið standi fyrir einhvers konar innheimtu- og áskriftarþjónustu fyrir fjölmiðla á Íslandi eða að vera í fjölmiðlarekstri nema hann sé út frá ákveðnum markmiðum sem við skilgreinum. Ég hef alltaf litið svo á hlutverk Ríkisútvarpsins, og það er náttúrlega líka skilgreint þannig, að það sé mikilvægt í lýðræðissamfélagi að við séum með hlutlausan fréttamiðil sem er ekki bundinn eignarhaldi einhverra sérstakra aðila í samfélaginu. Ég geri mér grein fyrir því að fólk hefur skoðun á því hvort sá fréttaflutningur sem þar fer fram aðhyllist sömu gildi og fólk aðhyllist en ég held að í grunninn getum við verið sammála um að þarna sé hlutlaus fréttaflutningur eða það er alla vega markmið okkar að svo sé. Okkar hlutverk er að tryggja tiltölulega hlutlausan fréttaflutning sem alla vega er ekki með tengsl í eignarhaldi við ákveðin hagsmunaöfl í samfélaginu. Ég held að það skipti máli.
Svo er það hitt sem okkur er tíðrætt um hér á Alþingi. Það er tungumálið. Hlutverk Ríkisútvarpsins er að miklu leyti að standa vörð um íslenskt tungumál, að búa til efni, hvort sem það eru fréttir, menning, skemmtiefni eða barnaefni sem er á íslenskri tungu, til að rækta tungumálið okkar hér á landi. Svo er það líka að halda utan um sögu okkar, að halda utan um sögu íslenskrar þjóðar svo þegar árin líða eigum við gott gagnasafn og fréttaefni af menningarviðburðum og öðru um hvað íslenskt samfélag er, að það sé tól sem bindur okkur saman. Þarna eru ákveðin markmið sem skipta máli. Því vil ég kannski aðeins heyra frá flutningsmanni um hans sýn á þetta. Ef við ætlum ekki að vera með skilgreiningar og markmið með því að styrkja ákveðinn fjölmiðil eða halda úti ríkisfjölmiðli, væri þá ekki hreinlega óþarfi að styrkja fjölmiðla yfirleitt? Er það skoðun flutningsmanns að við ættum þá frekar bara að hætta með Ríkisútvarpið, hætta að styrkja fjölmiðla og láta bara áskriftargjöld og markaðinn algerlega ráða? Eða erum við sammála um að það sé eitthvert markmið með fjölmiðlum sem ríkið á að standa að? Ég óska eftir sjónarmiðinu í því.