leyfi til veiða á álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma.
Frú forseti. Hér stendur maður sem er fimmklofinn í þessu máli. Það er almannavarnamaðurinn sem hugsar um kornrækt og þjóðaröryggi. Það er náttúruverndarsinninn sem er alinn upp við það að horfa þannig á álftina að hún sé okkur alveg heilög. Það er sveitastrákurinn sem horfði á gæsirnar éta grænkálið og hefur síðan á ferðum sínum um kjördæmið m.a. horft á helsingjana éta upp uppskerur á heilu ökrunum og síðan er það lögreglumaðurinn sem veltir fyrir sér hvernig við ætlum að fylgja þessu öllu saman eftir og hafa eftirlit með þessu.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa þingsályktunartillögu og fyrir að mæla fyrir henni hér. Mér finnst þetta mál mjög athyglisvert og væri mjög gott, held ég, að fá skýrslu og greiningu á þessu frá ráðuneytinu. En mig langar, á meðan ég er að átta mig aðeins betur á umfanginu á þessu, að spyrja hv. þm. Þórarin Inga Pétursson aðeins betur út í þetta, hvort hann hafi hugsað ákveðna þætti í þessu sem ég geri nú ráð fyrir miðað við hvað hann er búinn að flytja þetta oft. Það er í fyrsta lagi: Munu veiðarnar raunverulega fæla frá? Við erum búin að tala um alls konar og ég veit að t.d. bændur í austanverðri Skaftafellssýslu eru búnir að reyna, eins og þeir segja, allt til þess að reyna að halda helsingjanum frá. Mun þetta duga til? Í öðru lagi varðandi þessar veiðar, þegar þær fara fram, hvort hv. þingmaður sjái fyrir sér að bóndinn, þarna kemur veiðimaðurinn líka upp í mér, geti þá hugsanlega selt aðgang og þetta geti þá nýst sem tekjulind til að bæta skaða, sem verður óhjákvæmilega einhver. Í þriðja lagi spyr ég hvort einhvern veginn verði hægt að nýta bráðina sem verður þarna til, hvort þessi árstími sé þannig að hægt sé að nýta bráðina.