157. löggjafarþing — 34. fundur,  18. nóv. 2025.

leyfi til veiða á álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma.

216. mál
[19:38]
Horfa

Flm. (Þórarinn Ingi Pétursson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar og þó að hv. þingmaður hafi verið fimm- eða sexklofinn í málinu þá sýnist mér hann vera nokkuð heill þegar kemur að því að fjalla um málið í heild sinni vegna þess að þetta snýst um verndaráætlun á fuglum. Ég kom inn á það í minni ræðu varðandi það hvernig Danir, Hollendingar og Norðmenn tóku bara niður fjöldann, ákveðna stofnstærð á fuglum, og þetta snýst um að fækka þeim, þ.e. að veiða þá, einhver fælingarmáttur er í því líka en veiðarnar snúast fyrst og fremst um það að reyna að fækka fuglunum og reyna að áætla einhverja ákveðna stofnstærð og halda fuglunum í þeirri stofnstærð. Það er ekki verið að tala um að reyna að útrýma einu né neinu, bara að reyna að hemja stofnstærðina á viðkomandi fuglastofni. Hverjir komi til með að veiða? Hvort sem það eru bændur eða aðrir veiðimenn, þá þurfa menn bara að hafa tilskilin leyfi til þess. Bændur eru mjög góðir veiðimenn og ekkert síðri en þeir sem vinna við eitthvað annað. Varðandi það hvað verði gert við afurðina, þá reikna ég með því að það verði lítil breyting á því. Gæsir eru nú borðaðar allt árið um kring og mér sýnist álft vera bara alveg ágæt fyrir þá sem hafa lent í því að borða hana og ég hef ekki stórar áhyggjur af því. En fyrst og fremst snýr þetta að því að við reynum að fara í rannsóknir, meta stofnstærð, hver sé æskileg stofnstærð o.s.frv.