157. löggjafarþing — 34. fundur, 18. nóv. 2025.
leyfi til veiða á álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma.
216. mál
Frú forseti. Ég ætlaði að reyna að koma öllum spurningunum fyrir í einu andsvari til að tefja ekki tímann meira hér, en ég er bara með einfalda spurningu, hvort hv. þingmaður sjái fyrir sér að leyfi til að veiða verði bundin við næsta nágrenni eða akra, af því að hann talaði um að halda stofninum niðri, eða hvort það mætti veiða fuglinn hvar sem hann væri.