leyfi til veiða á álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma.
Frú forseti. Ég met það svo að það sé frekar á færi vísindamanna að svara því. Mér finnst líklegast að leyfin séu þá bundin tilskildum leyfum utan hefðbundins veiðitíma. Fyrir það fyrsta þarf að taka friðun af álftinni þegar við erum að fjalla um hana. Það gegnir öðru máli um heiðagæs, grágæs og helsingja, en það er þá vísindamanna og sérfræðinga að meta það. Fyrst og fremst held ég að það skipti ekki öllu máli hvar fuglinn er veiddur, heldur að gera það á skynsamlegan hátt, byrja á því að ákveða hver stofnstærðin eigi að vera, hver sé heppileg stofnstærð, og síðan fylgjum við þá bara ákveðnum leikreglum í framhaldinu. Það er held ég stóri þátturinn í þessu, ekki hvort við verðum á túninu hjá frænda hv. þingmanns eða túninu mínu sem má bara veiða helsingja á en álftir hjá nágranna mínum. Þetta snýst ekki um það, heldur fyrst og fremst að gera þetta á skynsamlegan hátt, en það þarf að gera það undir leiðsögn og við þurfum að byggja það á einhverjum rannsóknum hvernig við ætlum að haga þessum veiðum.