157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[15:03]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Í 1. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, með leyfi forseta:

„Markmið laga þessara er að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns og koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kynjanna á öllum sviðum samfélagsins.“

Þrátt fyrir þetta eru um 90% þeirra sem skráðir eru einstæðir foreldrar konur og aðeins 10% karlar. Ástæðan er augljóslega ekki sú að konan sé oftar einstæð heldur að lögheimilisforeldrið er skráð sem einstætt foreldri. Hitt foreldrið, sem jafnvel annast barnið að jöfnu, skráist aðeins sem einhleypur einstaklingur. Þetta skekkir allar greiningar á stöðu einstæðra foreldra. Gögn Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð sýna að einhleypir karlar á miðjum aldri eru í meiri hluta þeirra sem þiggja fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg og þannig hefur það verið lengi. Margt bendir til þess að stór hluti þessa hóps séu einhleypir feður sem eru ekki skráðir sem einstæðir foreldrar. Þegar foreldrar slíta samvistum í góðri sátt, vilja jafna umgengni og standa jafnt straum af útgjöldum tekur við þeim kerfi þar sem gríðarlega fjárhagslegur hvati fylgir því að hafa lögheimili barnsins. Lögheimilisforeldri fær ýmis réttindi sem hitt foreldrið, oftast faðirinn, fær ekki þótt hann beri jafnan kostnað af daglegri umönnun og að búa barninu heimili. Þótt heimilt sé að skipta um lögheimili eru fáir sem gera það. Feður vilja oft ekki taka af mæðrum þau réttindi sem þær hafa í sögulegu samhengi haft í ríkari mæli. En með breyttum samfélagsháttum og jafnari tekjum kynjanna þarf kannski að endurhugsa kerfið. Greiningar sýna að einhleypir karlar eru líklegri en flestir aðrir hópar til að glíma við fjárhagsvanda, þunglyndi og örorku. Tölurnar benda til að kerfið virki ekki sem skyldi eins og það er í dag (Forseti hringir.) og að nauðsynlegt sé að tryggja raunverulegt jafnræði foreldra og barna, ekki síst með því að viðurkenna báða einhleypa foreldra sem einstæða foreldra. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)