157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[15:06]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Það var svartur dagur í gær þegar það bárust fregnir af því að Ísland væri ekki undanþegið verndaraðgerðum Evrópusambandsins á innfluttan kísilmálm. Evrópusambandið sem sagt undanskilur ekki EES-ríkin Ísland og Noreg frá þessum aðgerðum sínum. Ísland og Noreg sem í gegnum EES-samninginn eru aðilar að innri markaði ESB, Ísland og Noreg sem staðið hafa í ströngu við að innleiða oft íþyngjandi tilskipanir frá ESB sem oft og tíðum við höfum ekkert við að gera. En nei, það skiptir engu.

Ég hlustaði á málflutning nokkurra þingmanna í þessum þingsal í gær er tilheyra meiri hluta sem sögðu suma þingmenn minni hluta vera að grafa undan EES-samningnum með viðbrögðum sínum. Grafa undan EES-samningnum, þvílík firra. Hver er að setja á verndarráðstafanir? Er það ekki ESB? Hver undanskilur EES-ríkin Ísland og Noreg ekki í þessum verndarráðstöfunum? Það er ESB. Hver er með þessum hætti að grafa undan EES-samningnum? Það er ESB. Hér þarf ríkisstjórn á Alþingi að staldra við. Það er komin upp ný staða í samskiptum Íslands og ESB vegna aðgerða ESB sem hefur afleiðingar og þær eiga að hafa afleiðingar. Ef Viðreisn og ríkisstjórnin ætla að halda áfram að nudda sér upp við ESB og láta nánast sem ekkert sé þá hef ég fyrst verulegar áhyggjur af hagsmunagæslu Íslands.

Og um hagsmunagæslu, það er vandasamt verk. Ég efast ekki um að embættismenn utanríkisþjónustunnar hafi verið vakin og sofin yfir því að halda hagsmunum Íslands á lofti. Ég efast ekki um það eina mínútu, en það er samt þannig að þegar hagsmunirnir eru af þeirri stærðargráðu sem þetta mál er og ákvarðanir teknar í höfuðborgum af ráðamönnum ESB-þjóða og eru pólitískar þá þarf að véla allar hendur á dekk, einnig utan Stjórnarráðs, fyrrverandi ráðamenn þjóðarinnar, ráðherra, forseta o.s.frv. (Forseti hringir.) sem hafa enn gríðarleg tengsl inn í stjórnkerfi ríkja. Var það gert? (Forseti hringir.) Hvernig var skipulagi hagsmunagæslunnar háttað? Við þurfum að vera ófeimin hér í þessum sal að fara yfir hvort eitthvað megi gera betur.