157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[15:08]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ákvörðun sú sem hefur verið rædd í gær og það sem af er þessari umræðu hér í dag er varðar tolla Evrópusambandsins á íslenskan og norskan kísil féll ekkert af himnum ofan í gær. Þetta er búið að hafa langan aðdraganda og það sem kemur mest á óvart eftir gærdaginn eru í raun fálmkennd viðbrögð stjórnvalda. Því er flaggað að það sé plan, að það sé plan B ef allt fer á versta veg. En hvert er plan B? Það hefur enn ekkert komið fram um það annað en einhver fálmkennd útfærsla hæstv. félagsmálaráðherra um að það skuli fara leið gerðardóms, sem verður ekki gert nema í samráði og samstarfi við Evrópusambandið, þ.e. greining á hvaða stöður séu raunverulega til boða. Finnum við okkur t.d. á þeim stað að allt er varðar ríkisstyrki, sem mest og iðulega eru gerðar athugasemdir við í tengslum við það regluverk sem þarna er undir, flosnar upp? Getum við til að mynda skoðað það að styrkja þau fyrirtæki sem fyrir verða og draga þann kostnað af öðrum greiðslum inn í þetta regluverk allt saman? Öll þessi sviðsmynd, allar þessar greiningar, hefði mér þótt skynsamlegt að lægju fyrir strax eftir að þetta var kynnt. Þetta er allt einhvern veginn mjög óútfært og að því er virðist lítt hugsað. Þess vegna vil ég biðja virðulegan forseta að hlutast til um það að hérna verði gefið svigrúm fyrir annaðhvort sérstaka umræðu eða skýrsluumræðu á allra næstu dögum þar sem stjórnvöld í rauninni útskýri fyrir þingheimi og landsmönnum öllum hvert plan B og eftir atvikum C var, því að það sem kom fram í gær getur ekki verið planið. Finnum við okkur enn einu sinni í þeirri stöðu að það sé ekkert plan í raun þegar eitthvað bjátar á?

Virðulegur forseti. Ég ítreka þessa beiðni mína, að það verði tekið til skoðunar að skapa svigrúm fyrir svona umræðu hér á allra næstu dögum.