Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í morgun voru vextir lækkaðir en minni og aumingjalegri gat lækkunin ekki verið. 0,25% lækkun þýðir að meginvextir Seðlabankans eru enn yfir 7%. Hversu lengi er hægt að ganga að heimilum landsins með þessum grimmilega hætti? Hvernig er hægt að réttlæta að láta heimilin sem minnst eiga og mest skulda sitja uppi með mörg hundruð þúsund króna aukinn kostnað vegna vaxta í hverjum einasta mánuði? Það er stundum sagt við börn sem suða að peningar vaxi ekki á trjánum en Seðlabankinn hefur svo sannarlega búið til glæsilegt og gróskumikið peningatré fyrir bankana sem ekkert þurfa að hafa fyrir því að njóta ávaxtanna af erfiði landsmanna. 4% vaxtagreiðslur af 50 millj. kr. láni eru 167.000 kr. á mánuði en ef breytilegir vextir Landsbankans lækka núna og verða 9,75%, þá lækka vaxtagreiðslur af þessu sama láni í 406.000 kr. Mismunurinn er heilar 239.000 kr. í hverjum einasta mánuði. Ætli heimili þurfi ekki að vinna sér inn um 450.000 kr. til að standa undir því, eingöngu til að bankinn geti að ósekju hirt ávexti erfiðis síns? Hversu lengi á þetta að ganga?
Í gegnum þennan tíma hefur Seðlabankinn margoft kvartað yfir tásumyndum á Tene og að fólk haldi að sér höndum til að minnka þensluna en fólkið sem mest skuldar og greiðir þessar háu upphæðir hefur svo sannarlega dregið úr útgjöldum og lagt sitt af mörkum, enda á það ekkert eftir til að eyða. En hvert er framlag Seðlabankans sjálfs til að minnka þensluna? Svarið við því er: Ekkert. Hann telur sig greinilega yfir það hafinn að draga úr eigin útgjöldum og eyðslu. Nú er komið í ljós að í gegnum allt þetta hávaxtatímabil hefur Seðlabankinn staðið í breytingum á glæsilegu húsnæði sínu. Áfallinn kostnaður vegna verksins er nú þegar um 3,5 milljarðar. Eftir höfðinu dansa limirnir er stundum sagt og fordæmi ráðamanna skipta máli. Hvernig í ósköpunum er það siðferðislega verjandi að Seðlabankinn setji kröfur á heimilin og fyrirtækin í landinu sem hann fer ekki einu sinni sjálfur eftir? Hversu mikilli þenslu hefur hann sjálfur valdið?