Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í síðustu viku var ég á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna og tilfinningin sem ég sit eftir með er að allur sá tryllingur sem birtist hér síðasta sólarhringinn vegna tollamáls ætti í raun að vera vegna loftslagsmála. Nýlegar rannsóknir benda til þess að hættan á verulegri röskun á AMOC-hafstraumi fari verulega vaxandi ef ekki tekst að draga hraðar úr losun á heimsvísu. Staða Íslands í því samhengi hefur verið mikið í umræðunni á COP og í raun í fjölmiðlum um allan heim. Eina leiðin til að komast hjá afleiðingunum sem eru að teiknast upp er ef ríki heims standa við loforðið sem þau gáfu framtíðarkynslóðum fyrir tíu árum í París um að hlýnun jarðar verði ekki meiri en 1,5°. Ríkustu ríki heims bera þar stærsta ábyrgð því að ríkustu 10% jarðarbúa losa helminginn í dag af því sem við erum að fást við. Vald þeirra er því mikið, að geta breytt loftslagi jarðar með hegðun sinni.
Breytingar geta þó líka verið í hina áttina því að á sama tíma hafa ríkin innsýn til að skilja hvað þarf að gera til að stöðva þróunina og tæknin er á fleygiferð, sem getur hjálpað. En það þarf vilja og það þarf fjárfestingu. Þess vegna fagna ég þeim áherslum sem birtast í atvinnustefnu Íslands, vaxtarplani til ársins 2035, sem er nú í samráðsgátt, áherslur sem ekki aðeins styðja við loftslagsmarkmið Íslands og vöxt atvinnulífs í landinu heldur markar stefnan okkur stöðu á meðal leiðandi ríkja þegar kemur að heildstæðri hugsun í loftslagsmálum. Í atvinnustefnunni segir, með leyfi forseta: „Loftslagsbreytingar eru ein alvarlegasta hnattræna áskorun samtímans og munu hafa áhrif á atvinnulíf á Íslandi líkt og annars staðar í heiminum.“ Stefnan leggur til að atvinnulíf, stjórnvöld og aðrir aðilar taki höndum saman til að nýta tækifærin sem felast í loftslagsaðgerðum, bæði í formi nýrra starfa, fjárfestinga og ekki síst samkeppnishæfis. Við þurfum að vera rödd afdráttarlausra aðgerða í loftslagsmálum, halda áfram að vera leiðandi með þróun tæknilausna og sýna heiminum hvernig á að gera þetta.