157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[15:27]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Virðulegur forseti. Það er brýnt að ræða stöðu Íslands í breyttum heimi og hvernig við höldum best á hagsmunum okkar sem einkennast af umhverfi sem er alþjóðlegt tollastríð. Þetta hef ég rætt alveg frá því að Trump setti einhliða tolla á margar þjóðir heims. Það er stórhættulegt fyrir útflutningsdrifið smáríki að standa eitt á ögurstundu í illdeilum við stórveldi eins og Bandaríkin. Það er alveg skýrt tilefni fyrir okkur að ræða þetta núna í ljósi nýlegra tolla á járnblendi sem Evrópusambandið tilkynnti um í gær. Um hvað snýst það mál? ESB var að bregðast við breyttri samkeppnisstöðu járnblendis innan ESB með því að grípa til verndaraðgerða. Það náði m.a. til Íslands og Noregs. Ástæðan var að tollar Trumps Bandaríkjaforseta höfðu leitt til þess að ódýrt járnblendi, einkum frá Kasakstan, Brasilíu og Malasíu, leitaði inn á Evrópumarkað. Ísland og Noregur færðu rök fyrir því að löndin ættu að vera undanskilin. Við erum jú hluti af innri markaðnum. EES-löndin munu hins vegar ekki vera hluti af tollabandalagi ESB og þess vegna telur framkvæmdastjórnin að löndin geti ekki fengið undanþágur og því erum við ósammála.

Við þurfum hins vegar að læra af þessu máli. Í fyrsta lagi virðumst við ekki eins og áður geta treyst því fyllilega að hafa markaðsaðgang þegar um er að ræða verndaraðgerðir af þessu tagi. Í öðru lagi sjáum við á útfærslunni að stjórnvöld, atvinnulífið og utanríkisráðuneytið náðu miklum árangri í hagsmunagæslunni og raunar hækkuðu hlutabréf Elkem eftir að niðurstaðan var fengin á mörkuðum í morgun. Þannig að kannski voru sum stóryrðin sem uppi voru höfð um ESB í gær ekki fyllilega sanngjörn miðað við þetta. (Forseti hringir.) En það sem er alvarlegt er að sumir hafi notað þetta mál til þess að grafa undan EES-samningnum, talað um að (Forseti hringir.) samþykkja ekki gerðir EES í einhvers konar hefndarskyni og þar skilja leiðir með íslenskum hagsmunum, almannahagsmunum, atvinnulífinu, almenningi og þeim sem þannig tala. (Forseti hringir.)