157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[15:29]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Á haustfundi Landsvirkjunar spurði orkufyrirtæki þjóðarinnar eftirfarandi lykilspurningar: Er Landsvirkjun heimilt að halda frá orku fyrir heimili ef t.d. rafmyntagröftur er tilbúinn að borga hærra verð? Í huga okkar flestra er svarið við þessari spurningu vonandi já þó að ekki sé skýrt kveðið á um það í löggjöf eftir að við hófum innleiðingu á orkupökkum Evrópusambandsins. Hafa ber í huga að sögulega hefur orkumarkaður á Íslandi verið tvískiptur; við höfum verið með almenning annars vegar, sem eru fyrirtæki og heimilin í landinu, og hins vegar erum við með stóriðjuna. Þessi nálgun hefur tryggt öfluga umgjörð raforkumála. Innleiðing orkupakka Evrópusambandsins með áherslu á fullkomið markaðsfyrirkomulag grefur í raun og veru undan þessari stöðu, bæði undan orkuöryggi almennings og orkuöryggi stórnotenda sem treysta á langtímasamninga og fyrirsjáanleika í sínum viðskiptum í stað sveiflukennds orkumarkaðar. Þess vegna er lykilmál fyrir íslenska hagsmuni hvernig orkulöggjöf Evrópusambandsins er innleidd. Það er lykilhagsmunamál, bæði fyrir almenning í landinu og fyrir samkeppnishæfni iðnaðar sem núna reynir á.

Samkeppniseftirlitið hefur í samhengi við þróun orkumarkaðar ýtt á að stóriðja geti selt ónýtta orku aftur inn á kerfið. Hér verður pólitík að skilja hvað það þýðir, hvað slík breyting þýðir ef hún er ekki hugsuð vandlega. Hún getur hvatt til þess að fyrirtæki dragi úr framleiðslu en gerist heldur raforkusalar á samningstíma. Er slíkt ráðlegt? Er það eitthvað sem við viljum sjá raungerast? Er það ráðlegt í samhengi við hagvaxtarspá Seðlabankans sem birt var í dag? Þar hefur hagvaxtarspáin fallið niður í 0,9% á þessu ári á sama tíma og við eigum mikið undir okkar útflutningsgreinum.

Virðulegi forseti. Það þarf skýra pólitíska forystu um það (Forseti hringir.) hvernig við innleiðum orkumarkaðslöggjöf Evrópusambandsins og ég kalla eftir henni.