Störf þingsins.
Frú forseti. Í morgun birtust hjá Hagstofu Íslands nýjar tölur þar sem allar viðvörunarbjöllur ættu að klingja. Þær sýna svart á hvítu að afkoma fyrirtækja í ferðaþjónustu hefur dregist saman um 56% milli áranna 2023 og 2024. Í opinberri umræðu hefur gjarnan verið horft eingöngu á heildargjaldeyristekjur og fjölda ferðamanna og sú ályktun dregin að allt sé í góðu jafnvægi, en því miður segja tölurnar annað. Afkoma dregst saman um tugi prósenta í nær öllum undirgreinum ferðaþjónustunnar; 73% samdráttur hjá bílaleigum er eitt skýrasta dæmið um alvarleika málsins. Og hvernig ætlar ríkisstjórnin að bregðast við? Með því að setja á kílómetragjald, með 67% hækkun vörugjalda, hækkun áfengisgjalda og fyrirhuguðu náttúru- og innviðagjaldi. Að leggja nýjar álögur á atvinnugrein sem þegar er undir miklu álagi gengur einfaldlega gegn allri heilbrigðri skynsemi. Það er ekkert sem bendir til þess að árið 2025 færi okkur bata. Því miður er líklegra að ástandið versni enn frekar árið 2026. Ríkisstjórnin verður að skilja að verðmætasköpun útflutningsgreina, bætt samkeppnishæfni og aukin framleiðni gerist ekki af sjálfu sér. Ríkisstjórnin verður að skilja raunhagkerfið og þá stöðu sem atvinnulífið býr við um allt land. Nú er mál að skattahækkunum og árásum á atvinnulífið og landsbyggðina linni. Kreistum ekki súrefnið úr fjöreggi samfélagsins sem eru vinnandi fólk og fyrirtæki.