sjúkraskrár.
Virðulegur forseti. Það var reglulega gagnlegt að þetta mál kom inn til hv. velferðarnefndar á milli 2. og 3. umræðu til þess að nefndarmenn gætu glöggvað sig á athugasemdum sem höfðu borist frá fluglæknum sem gera athugasemdir við að við samningu frumvarpsins hafi ekki verið brugðist við aðstæðum sem upp eru komnar og lúta að útgáfu vottorða til flugáhafna. Það er þess vegna miður að nefndin og ráðuneytið hafi ekki borið gæfu til þess að taka tillit til þessara athugasemda með því að betrumbæta frumvarpið með þeim einfalda hætti að koma inn pósitífu ákvæði sem leysir þessar aðstæður. Allt að einu held ég að málið sé til þess fallið að hægt sé að styðja það en ég ítreka og brýni hæstv. heilbrigðisráðherra til að stíga inn í þær aðstæður sem nú eru uppi varðandi útgáfu þessara vottorða og koma inn á þingið með breytingartillögu sem bregst við því. Ég skynja ekki annað en fullan samhug meðal þingmanna til að bregðast við því.