157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

sjúkraskrár.

69. mál
[15:42]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Mig langaði að koma efnislega inn á nákvæmlega sama atriði í þessu máli og hv. þm. Sigríður Á. Andersen kom hér inn á, þ.e. það sem varðar fluglæknasetrið. Ég held að það væri réttast — og það er gott að hér er komin ábending um að taka málið inn í nefnd á milli 2. og 3., að klára þetta mál, nýta ferðina. Þetta er þannig mál (Gripið fram í.) — þetta er 3. umræða, þetta er klúður. Ef sá sem hér stendur hefði verið í nefndinni hefði þetta aldrei gerst. Það er eins og fólk skilji ekki þetta mál, þetta er nefnilega stórmál. Við munum eftir alvarlegu flugslysi í Ölpunum fyrir nokkrum árum hjá German Wings. Þetta snýst efnislega um svoleiðis mál og það kemur mér mjög á óvart að það hafi ekki verið klárað hér að grípa inn í. Málið er mjög skýrt. Þetta er mjög stór iðnaður á Íslandi; þetta eru flugmenn, flugstjórar, flugumferðarstjórar og flugliðar almennt. Ég vil benda á að hjá Samgöngustofu, sem er stjórnsýslustofnun þessa máls, er stuðningur við að taka þetta upp og líka hjá þeim stéttarfélögum sem þetta snýr að. Það vekur því töluverða furðu að þetta mál hafi ekki verið klárað af hálfu nefndarinnar.