sjúkraskrár.
Virðulegur forseti. Já, ég vil taka undir það sem hér hefur komið fram, þetta er í sjálfu sér ágætt mál og vel unnið. En það vafðist alveg fyrir nefndarmönnum, sama hvar þeir stóðu, hvort sem það var í meiri eða minni hluta, hvernig ætti að fara með það mál sem hér hefur verið komið inn á varðandi aðkomu fluglækna. Maður hefði viljað sjá að það væri einhver lausn í því þegar málið er tekið út úr nefndinni, en ég held að málið sé þess eðlis að hægt sé að styðja það hér í dag og treysta því þá að þetta samtal verði tekið lengra þannig að lausn finnist á því. Rökin eru allgóð með því að taka tillit til þessarar starfsstéttar.