157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

evrópskir langtímafjárfestingarsjóðir.

147. mál
[15:47]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það var dapur dagur fyrir íslenskt atvinnulíf og samfélag í gær með ákvörðunum ESB. Óvissan er mikil. Við Sjálfstæðismenn höfum staðið vörð um EES-samninginn í rúm 30 ár. Eftir gærdaginn er ljóst að ESB ber ekki sömu virðingu fyrir samningnum og við. Það gengur gegn sannfæringu minni að halda hér áfram að samþykkja innleiðingar frá Brussel þegar við erum í óvissu um hvort við séum að fullu hluti af innri markaði ESB eða ekki. Hér geta hlutirnir ekki gengið eins og ekkert hafi í skorist. Og enn og aftur verð ég að lýsa vonbrigðum mínum yfir því að enn hefur ríkisstjórnin ekki séð ástæðu til þess að ræða við stjórnarandstöðuna vegna þessa máls þrátt fyrir margítrekaðar óskir. Af þessum sökum verður Sjálfstæðisflokkurinn á gulu í þessu máli.