157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

evrópskir langtímafjárfestingarsjóðir.

147. mál
[15:48]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Alla jafna myndum við styðja þetta mál og gerum það í grunninn þó að þetta varði á engan hátt íslenska hagsmuni þar sem slíkir sjóðir eru ekki starfræktir á Íslandi. Við höfum hins vegar gjarnan innleitt eitthvað slíkt vegna þess að við erum fullgildir, að við héldum, aðilar að innri markaðinum og EES. Þess vegna væri það sérkennilegt ef við afgreiddum slík mál eins og ekkert hefði í skorist, eins og ekkert hefði gerst í gær. Afleiðingar af þeirri einhliða ákvörðun Evrópusambandsins eru augljóslega ófyrirsjáanlegar. En að þessu sinni, þó að við styðjum inntak þessa máls, þá hefur það engin áhrif á Ísland, þá munum við í Framsókn munu sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu.