157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

evrópskir langtímafjárfestingarsjóðir.

147. mál
[15:49]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Þetta er mál sem er framhald af máli frá 2022, reglugerð sem við innleiddum þá, um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, svokallaða ELTIF-sjóði. Engir slíkir sjóðir eru starfræktir á Íslandi. En það virðist aldrei standa á okkur að innleiða reglugerðir, meira að segja gerðir sem snúa að því að koma fólki úr flugi yfir í lestir. Við erum ekki með lestarsamgöngur. Svo góð höfum við verið gagnvart EES-samningnum að þó að það bitni á okkar fyrirtækjum, einstaklingum á Íslandi þá innleiðum við nánast allt. Í þessu máli bárust ekki einu sinni neinar umsagnir. Við erum hér eftir nokkrar mínútur að fara að samþykkja þetta, örugglega með meiri hluta, þrátt fyrir það sem gerðist hér í gær og ESB er ekki virða samninginn. Miðflokkurinn er ekki að leggjast gegn þessu máli en við verðum gul.