157. löggjafarþing — 35. fundur, 19. nóv. 2025.
sýslumaður.
111. mál
Frú forseti. Ég er hingað komin fyrst og fremst til að þakka allsherjarnefnd fyrir góða vinnu við þetta mál, það hefur fengið góða og vandaða umfjöllun. Ég veit að á þessu máli eru skiptar skoðanir. Ég er mjög ánægð með þetta frumvarp og ég er mjög ánægð með vinnu nefndarinnar. Þetta er í mínum huga yfirstjórnunarmál. Þetta er einföldunarmál. Þetta er tækifæri til þess að jafna þjónustu í byggðum landsins. Ég hlakka til að fylgjast með atkvæðagreiðslunni.