157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[15:53]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þegar þessi lagabálkur var saminn í dómsmálaráðuneytinu árið 2022 var mikið haft fyrir því að reyna að ná sem víðtækastri sátt um þetta mál. Það er gríðarlega mikilvægt, þegar svona stór skref eru stigin og þegar um er að ræða þjónustukjarna, grunnþjónustu íbúanna, ekki síst um hinar dreifðu byggðir, að vandað sé til verka. Margir höfðu orð á því að sporin hræði í þeim efnum, þ.e. að ekki hafi gengið eftir fyrirheit sem gefin hafa verið. Það voru miklar áhyggjur hjá landshlutasamtökum, hjá sveitarfélögum, hjá einstaklingum og ekki síst starfsmönnum þessara starfsstöðva vítt og breitt um landið, hjá sýslumannsembættunum, af því að starfsstöðvarnar yrðu fluttar eða jafnvel lagðar niður. Við reyndum að leiða í jörð þennan ágreining og ná víðtækari sátt og það er á þeirri forsendu sem breytingartillagan sem verður tekin hér til umfjöllunar á eftir, um lögbindingu starfsstöðva til að byrja með, var í fyrri útgáfu frumvarpsins.