sýslumaður.
Virðulegur forseti. Ég efa ekki að nefndin hafi vandað sig við að vinna verkið eins vel og hægt var. Ég get ekki séð, þrátt fyrir að málið hafi verið í umfjöllun í þó nokkur ár, að einhver samstaða hafi vaxið um þetta mál, hvorki meðal starfsmanna sýslumannsembætta né hringinn í kringum landið. Við í Framsókn höfum bent á að þessi vegferð ríkisstjórnarinnar, að miðstýra þjónustu við landsmenn, grunnþjónustunni, sé röng stefna og að mikilvægara sé að viðhalda grunnþjónustukjörnum úti um allt land. Ég hef grun um að í þessum sal séu þau sjónarmið uppi að miklu fleiri séu sammála þeirri stefnu en þessu frumvarpi. Þetta er því miður ekki nægilega vandað. Óvissan verður viðloðandi næstu 14 mánuði, bæði fyrir starfsfólk sýslumannsembættanna og starfsfólk kjarnaþjónustustöðvanna sem eru í kringum sýslumannsembættin, þangað til reglugerð ráðherrans liggur fyrir. Við í Framsókn leggjum til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar og munum greiða atkvæði gegn frumvarpinu í heild sinni.