sýslumaður.
Virðulegi forseti. Með frumvarpinu er boðuð meiri háttar breyting á fyrirkomulagi og starfsemi framkvæmdarvalds, ríkis, í héraði. Sem landsbyggðarkjörinn þingmaður get ég ekki annað en látið í mér heyra í þessu máli. Hér er stórt stökk tekið í átt að miðstýringu og þar með sköpuð töluverð óvissa um þjónustu á landsbyggðinni. En þrátt fyrir að markmiðið sé að efla samræmda málsmeðferð og stafræna þjónustu er ekki tryggt að breytingarnar leiði til jöfnunar í þjónustu. Hér skortir mælanleg markmið um hvenær og hvernig hagræðing skuli nást og af þeim sökum er frumvarpið ekki í nægilega góðu samræmi við lög um opinber fjármál. Þjónusta við almenning má ekki skerðast í nafni hagræðingar og breytinga á stafrænum lausnum. Ég tel að frumvarpið sé ekki nægilega tilbúið til samþykktar og verð því á rauðum takka hér.