sýslumaður.
Frú forseti. Við greiðum hér atkvæði um frumvarp um sýslumann. Málið hefur verið lengi í vinnslu. Það hefur verið í vinnslu hjá þremur ráðherrum. Að sjálfsögðu hafa orðið á því breytingar á milli þeirra, það hafa verið mismunandi áherslur í þessu. Þetta mál fékk mjög góða og ítarlega umfjöllun í nefndinni á síðasta þingi og aftur núna. Málið er að öllu leyti vel unnið. Við getum verið ósammála um þá leið sem er farin en ég treysti hæstv. dómsmálaráðherra fyllilega til að tryggja að þær áhyggjur sem hér hafa verið viðraðar, um að það vatni undan starfsstöðvunum og þjónustan á landsbyggðinni versni, raungerist ekki. Ég ber fullt traust til ráðherrans til að ganga þannig frá málum með reglugerð að störfin á landsbyggðinni verði tryggð og að okkur takist jafnframt að efla starfsstöðvarnar, eins og kemur fram í þessu, með flutningi fleiri verkefna til þeirra, þannig að við munum brjóta þá reglu, sem stundum er kölluð náttúrulögmál, að störfin leki öll hingað til höfuðborgarsvæðisins.