sýslumaður.
Frú forseti. Við greiðum hér atkvæði um mál sem er í mínum huga afar einfalt mál. Hver kannast ekki við það að þurfa að nýta sér þjónustu sýslumanns með einum eða öðrum hætti? Er það embættismaðurinn sjálfur sem afgreiðir þá þjónustu sem þú þarft á að halda eða er það manneskjan á gólfinu? Eru það mismunandi starfsmenn þessara embætta sem sinna þeirri þjónustu sem þú þarft að fá frá þínum sýslumanni? Þetta mál snýst um það að nýta ríkisfjármagnið betur til að efla þá þjónustu sem við erum að nýta okkur, ekki til að vera með þessa endalausu embættismenn sem þurfa í rauninni ekki að vera svona margir. Þetta snýst um að nýta fjármagnið betur til að efla þjónustu við fólk á landsbyggðinni og því finnst mér það pínulítið skrýtið, skulum við segja, að þetta sé einhvern veginn aðför að landsbyggðinni þegar þetta snýst einmitt um það að nýta peninginn betur í þágu þjónustunnar. Þetta snýst ekki um embættismannafjölda. Þetta snýst um það hvernig við nýtum peninginn í þjónustu gagnvart fólkinu okkar.