157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[16:08]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég hvet bara hv. þingmenn til þess að fara og skoða ræður sem ég flutti ekki fyrir svo löngu þar sem ég taldi upp tíu atriði þar sem einmitt þessi ríkisstjórn er að hjóla beint í landsbyggðina og það er ekki mikil frændsemi eða greiðasemi þar alla vega.

En mig langaði aðeins að skýra afstöðu mína betur, virðulegur forseti. Þetta snýst um þjónustuna sem við á landsbyggðinni erum að óska eftir. Ótti okkar snýst um það að þegar forystumaðurinn, sá sem stýrir stofnuninni, fer að þá fari fjármagnið annað, þá fari störfin annað. Það segir sagan okkur.

Og varðandi það, virðulegur forseti, að stefnt sé að því að færa verkefni og störf til sýslumannsins þá langar mig bara að benda á frumvarp sem við erum að ræða, sem eru breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld, þar sem einmitt er verið að færa verkefni frá sýslumönnunum til skattstjórans. Þetta erum við að ræða í dag.