157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[16:09]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér er rætt um það að markmið séu ekki nægilega tilgreind og að þau séu óljós. Í frumvarpinu er það rakið mjög skilmerkilega, í kaflanum þar sem fjallað er um tilefni og nauðsyn lagasetningar, að markmiðið sé þríþætt. Í fyrsta lagi að bæta þjónustu við landsmenn alla. Í öðru lagi að hámarka nýtingu fjármagns. Ég er ekkert feimin við að ræða það, þetta er yfirstjórnunarmál. Við erum að fækka sýslumönnum, við ætlum að efla þjónustu að öðru leyti. Það kemur mér ekki á óvart með Miðflokkinn, hann styður aldrei hagræðingarmál. Það er ekkert nýtt í því. Ég hef samúð með byggðasjónarmiðunum. Í þriðja markmiði þessa frumvarps kemur mjög skýrlega fram að markmið sé að vinna í samræmi við byggðaáætlun um það að standa vörð um grunnþjónustu á landsbyggðinni. Það er síðan rakið mjög skilmerkilega strax í 1. gr. frumvarpsins hvað okkur gengur til og hvernig við viljum vinna.

Mér finnst ástæða til að nefna þetta, því að ég heyri hér hvernig þetta er, að við erum að tala um að stuðla að jöfnu aðgengi að þjónustu óháð búsetu. Þetta er rauður þráður í gegnum frumvarpið allt. Það kemur fram í greinunum, það kemur fram í greinargerðinni og í allri umfjöllun um málið. Þetta er einföldunarmál, þetta er þjónustumál. Við erum að kroppa í yfirstjórn og við ætlum að efla starfið úti á landi.