157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[16:12]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég gegndi embætti sýslumannsins í 16 ár og ég vann úti á landi, á landsbyggðinni, og ég vann á slíkum embættum í átta ár þar að auki. Landsbyggðin á þegar í vök að verjast, frú forseti. Ríkisstjórnin hefur kosið að leggja ítrekað á nýja skatta sem koma munu harðast niður á fólki og fyrirtækjum úti á landi. Þar má nefna kílómetragjald, veiðigjald og fyrirhugað innviðagjald á ferðamenn. Sameining sýslumannsembættanna úr níu í eitt sogar vald úr héraði í átt til aukinnar miðstýringar. Hætt er við því að afleiðingarnar verði þær, ef þetta frumvarp verður að lögum, að vel launuð störf, hálaunastörf, sogist frá landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðið. Eru ekki nægilega margar stofnanir á höfuðborgarsvæðinu? Eru þær ekki nægilega margar? Þarf að leggja niður allar stofnanir úti á landi? Í tilefni af orðum hv. þm. Maríu Rutar Kristinsdóttur, þá hafa rannsóknir sýnt það í gegnum árin á þessu sviði að afgreiðsluhraði er í öfugu hlutfalli við stærð þessara stofnana, öfugu hlutfalli við stærð.