157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[16:15]
Horfa

Snorri Másson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég hugðist stuttlega bera af okkur sakir. Það er ljóst í þessu frumvarpi að í sambandi við byggðasjónarmiðin þá er ekki trygging í þessu frumvarpi fyrir því að þeim verði fylgt eftir. Það er ákvörðun. Í sambandi við hagræðinguna þá er beinlínis sagt fullum fetum að hér sé ekki verið að spara í kostnaði við rekstur ríkisins á sýslumannsembættum. Það er ákvörðun. Það sem eftir stendur eru raunveruleg áhrif frumvarpsins sem eru að soga vald úr héraði til ráðherrans og auka miðstýringu. Það eru áhrifin. Þannig að við höfnum þessum ístöðulausu fullyrðingum hæstv. ráðherra.