sýslumaður.
Frú forseti. Ég ætlaði einnig að fá að bera af mér sakir. Hæstv. dómsmálaráðherra segir hér að Miðflokkurinn styðji aldrei hagræðingarmál. Ég held að hæstv. ráðherra hreinlega hlusti ekki á málflutning Miðflokksmanna. Ég held að við séum alltaf með hagræðingarmál. Málið er bara þetta. Þetta er ekki hagræðingarmál. Þetta snýst ekki um hagræðingu. Þetta snýst ekki um að efla þjónustu á landsbyggðinni. Þetta snýst um miðstýringu og þetta snýst um það að soga vald og störf til höfuðborgarsvæðisins. Það er það sem þetta snýst um.