brottfall laga um Heyrnar- og talmeinastöð.
Virðulegur forseti. Ég flyt hér frumvarp til laga um brottfall laga um Heyrnar- og talmeinastöð, nr. 42/2007. Með því að fella úr gildi lög um Heyrnar- og talmeinastöð og leggja niður þá ágætu stofnun, sem hefur sinnt sínum skjólstæðingum vel, er nú lagt upp með næstu skref til framtíðar. Ætlunin er að færa verkefni stöðvarinnar til einingar innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og opna þar með fyrir enn frekari þverfaglega teymisvinnu og aðgengilega þjónustu fyrir þau sem búa við heyrnarskerðingu, heyrnarleysi eða talmein. Sérstaklega skal tekið fram að sú eining, þótt staðsett sé innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, mun þjóna allri landsbyggðinni, líkt og Heyrnar- og talmeinastöð Íslands hefur gert. Þessi aðgerð er meðal tillagna starfshóps um stefnumótun í heyrnarþjónustu sem skilaði ráðherra prýðilegri skýrslu og tillögum um breytingar svo að tryggja megi bætta og skilvirkari heyrnarþjónustu hér á landi til framtíðar og er vert að nota tækifærið og þakka þeim starfshópi fyrir vandaða vinnu sem og að benda áhugasömum á fróðlegan lestur.
Frumvarpið snýst þannig ekki um niðurskurð eða brottfall þjónustu heldur um framþróun, þverfaglega samvinnu og betra aðgengi að þjónustunni. Heilbrigðisþjónustan sem Heyrnar- og talmeinastöð hefur veitt verður áfram með óbreyttu sniði en mikilvægt er að um þjónustuna gildi sama löggjöf og gildir um aðra heilbrigðisþjónustu. Í þessu samhengi er rétt að minnast á að Heyrnar- og talmeinastöð er með aðstöðu til að veita viðeigandi heilbrigðisþjónustu á Akureyri. Sú þjónusta verður áfram óbreytt en mun flytjast í húsnæði heilsugæslunnar í Sunnuhlíð. Með brottfalli laganna opnast fyrir enn frekari samnýtingu og þverfaglega samvinnu með öðrum heilsugæslustöðvum um land allt.
Heyrnar- og talmeinastöð hefur um árabil sinnt mikilvægu hlutverki en sú staða er uppi í dag að lögin sem stofnunin byggir á takmarka frekar en stuðla að framþróun. Þau gera ráð fyrir að ein stofnun beri ábyrgð á allri þjónustu við heyrnarskerta, heyrnarlausa og þau sem glíma við talmein. Með því að fella gildandi lög brott verður þjónustan ekki lengur bundin með lögum við eina stofnun og sömu reglur gilda um þjónustuna eins og um veitingu annarrar heilbrigðisþjónustu. Með þeirri breytingu verður enn greiðara að nýta heilsugæslustöðvar um land allt til að veita hluta þjónustunnar. Þá opnast fyrir teymisvinnu með t.d. sálfræðingum heilsugæslustöðvanna sem geta komið að stuðningi sem oft er þörf á þegar einstaklingar eru að missa heyrn eða stuðningi til foreldra ef barn þeirra greinist með heyrnarskerðingu.
Undanfarin ár hefur aukin eftirspurn eftir þjónustu orðið til þess að ákveðin þjónusta er nú einnig veitt hjá sjálfstætt starfandi heyrnarfræðingum, talmeinafræðingum og öðrum sérfræðingum og þannig hefur þjónustan orðið bæði fjölbreyttari og sveigjanlegri en kallar enn frekar á að lög um Heyrnar- og talmeinastöð séu felld brott.
Frú forseti. Með þessu frumvarpi tryggjum við að heyrnarlausir, heyrnarskertir og þau sem glíma við talmein fái þjónustu á réttu þjónustustigi, hjá viðeigandi sérfræðingum og í samfelldu og samhæfðu kerfi á grundvelli laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, þar sem ný eining tekur við verkefnum Heyrnar- og talmeinastöðvar. Starfsfólk Heyrnar- og talmeinastöðvar mun verða starfsfólk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en gert er ráð fyrir að embætti forstjóra Heyrnar- og talmeinastöðvar verði lagt niður.
Heyrnar- og talmeinastöð hefur það hlutverk samkvæmt gildandi lögum að útvega hjálpartæki, sjá um viðhald og uppsetningu hjálpartækja en verði þetta frumvarp að lögum munu styrkir til kaupa á hjálpartækjum verða samkvæmt lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, sem tryggir aukið jafnræði þeirra sem á slíkum tækjum þurfa að halda. Við vitum að heilbrigðisþjónusta sem einstaklingar með heyrnarskerðingu og talmein þurfa þarf svigrúm til að þróast. Fjöldi fólks með heyrnarskerðingu hefur tvöfaldast á undanförnum áratugum og mun halda áfram að aukast með hækkandi meðalaldri þjóðarinnar. Við verðum að bregðast við þessari þróun með sveigjanleika í kerfinu og samvinnu. Markmið heyrnarþjónustu er og verður að tryggja tímanlega skimun, greiningu og meðferð með snemmtækri íhlutun á öllum æviskeiðum og á landinu öllu. Markmiðið er líka að meðferð sé einstaklingsmiðuð og unnið sé í samræmi við viðurkenndar meðferðarleiðbeiningar og gæðaviðmið af viðeigandi sérfræðingum og markmiðið er líka að tryggja sem best lífsgæði heyrnarskertra og aðstandenda þeirra.
Virðulegur forseti. Ég hef nú gert grein fyrir meginatriðum frumvarpsins. Leyfi ég mér að leggja til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. velferðarnefndar og 2. umræðu.