brottfall laga um Heyrnar- og talmeinastöð.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir framsögu um þetta mál sem ég tel að geti verið jákvætt mál og jákvætt skref að einhverju leyti. Mig langar hins vegar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún geti útskýrt þau ummæli sín sem lutu að því að frumvarpið væri til þess fallið að auka jafnræði einstaklinga við kaup á heyrnartækjum. Einnig langar mig að nefna að upphaflegt hlutverk Heyrnar- og talmeinastöðvar var að sinna verulega heyrnarskertu fólki. Nú hafa sprottið upp einkaaðilar sem sinna almennum heyrnarmælingum og sölu á heyrnartækjum, bara rétt eins og sjóntækjafræðingar hafa um árabil og áratugi haft ríkan sess í atvinnulífinu hér og í heilbrigðisþjónustu. Hefur hæstv. heilbrigðisráðherra ekki áhyggjur af því að þetta hlutverk Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar, þ.e. að þjónusta sérlega heyrnarskert fólk en ekki bara þá sem eru með þessa hefðbundnu heyrnarskerðingu, sem er jafnvel aldurstengd hjá mörgum — að þjónustan við þennan veikasta hóp skerðist þegar þetta er komið inn á heilsugæsluna og farið er að taka á móti öllum í heyrnarmælingu? Ég velti því líka fyrir mér hvort það sé í raun hlutverk heilsugæslunnar að sjá um heyrnarmælingar í ljósi þess að heilsugæslan sér ekki um sjómælingar eða það að útvega gleraugu. Er einhver eðlismunur á þessum þáttum, heyrnarmælingum og sjónmælingum?