157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

brottfall laga um Heyrnar- og talmeinastöð.

238. mál
[16:39]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Jafnræði í sölu heyrnartækja er þannig að sumir geta farið til Heyrnar- og talmeinastöðvar og þurfa að bíða eftir þeirri þjónustu en fá hana þá betur niðurgreidda en annars staðar. Hér þarf að jafna aðstöðu. Það er líka ákall frá notendum að ríkið taki meiri þátt í niðurgreiðslu og það er sjálfstætt verkefni sem verið er að greina hvað kosti og er svo sannarlega þörf á. Það er ekki meiningin að Heyrnar- og talmeinastöð hætti að starfa heldur að hún verði áfram sérhæfð fyrir þau sem mest þurfa á að halda. Þetta er ágætlega skilgreint í skýrslunni sem ég vitnaði til; það verður áfram þjónusta við þau sem heyra verst og þau sem hafa mest talmein en í heilsugæslunni er meiri fræðsla og fyrstu mælingar þannig að hægt sé að vísa fólki áfram rétta leið. Fyrsta stigið er heilsugæslan; það er grunnþjónusta sem þarf að vera aðgengileg öllum óháð búsetu. Síðan er auðvitað annað stigið sem er þá bæði Heyrnar- og talmeinastöð og sjálfstætt starfandi heyrnarfræðingar þar sem, eins og ég segi, Heyrnar- og talmeinastöð mun áfram taka þyngstu tilfellin. Loks er þriðja stigið sem eru þá heyrnarbætandi aðgerðir og kuðungsígræðslur, það verður áfram hjá Landspítala. En þetta er allt ágætlega tíundað í skýrslunni um framtíðarfyrirkomulag þessarar þjónustu sem allir hagaðilar áttu aðgang að.