157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

brottfall laga um Heyrnar- og talmeinastöð.

238. mál
[16:48]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir spurningarnar. Það er alveg rétt að það þarf að þróa þessa þjónustu áfram. Eins og ég hef nefnt eru einkaaðilar þegar umsvifamiklir þegar kemur að heyrnarmælingum og heyrnarþjónustu á öðru stigi og áfram er gert ráð fyrir því að þar sé ráðgjöf, meðferð og greining sérstaklega fullorðinna sem eru með væga eða miðlungs alvarlega heyrnarskerðingu upp að 79 desíbelum, ef það segir þingmanninum eitthvað, samkvæmt samræmdum meðferðarleiðbeiningum. Þær hefur vantað en það er byrjað að vinna sérhæfðar og þverfaglegar leiðbeiningar sem gera okkur þá auðveldara að útvista þjónustu.

Hvað varðar apótekin þá þarf auðvitað að skoða það sérstaklega hvar slík þjónusta er. Ég er nú kannski ekki reiðubúin að segja mikið um það á þessu stigi. En þessi vinna og útfærsla er vissulega í gangi. Nú þegar kemur að greiðsluþátttöku þá er það rétt að það er kallað eftir því að ríkið taki meiri þátt í kaupum á heyrnartækjum og það er mjög margt þar sem þarf að skoða. Núna eru 60.000 fyrir hvert heyrnartæki upp af þessum 70 desíbelum en svo 80–90% af tækjunum í alvarlegri tilvikum. Það er ýmislegt þarna sem þarf að skoða, t.d. er miðað við betra eyra sem kemur sér illa ef þú ert t.d. heyrnarlaus á hinu. Það þarf að endurskoða upphæðir og þarna er kostnaðargreining í gangi. Það er ekki eðlilegt að miða gjaldfrelsi við 18 ár (Forseti hringir.) því þau ungmenni eru auðvitað tekjulítil o.s.frv. Hér viljum við gera betur.