brottfall laga um Heyrnar- og talmeinastöð.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka ráðherranum fyrir góð svör. Það er ánægjulegt að heyra að verið sé að skoða þetta með greiðsluþátttökuna. Ég ætla að leyfa mér að segja að þetta sé augljós þúfa sem þarf að komast yfir og stundum séu þetta hreinlega heilu börðin sem fólk þarf að komast yfir. Mig langar til að forvitnast aðeins um það í mínu seinna andsvari hvort átt hafi sér stað einhver vinna innan heilbrigðisráðuneytisins varðandi það að samþætta greiðsluþátttöku í lyfjum og hjálpartækjum, t.d. þegar verið er að taka tillit til kostnaðar o.s.frv. Ef þú ert með hjálpartæki til að gefa lyf, að það sé ekki greiðsluþátttaka í þeim og ekki tekið tillit til þess á nokkurn hátt, en eingöngu horft til lyfjanna — ég vil leyfa mér að segja að þá sé jafnvel verið að mismuna sjúklingum. Eru einhver áform hjá ráðuneytinu um að útvíkka mögulega greiðsluþátttöku í lyfjum yfir á hjálpartæki. (Gripið fram í.) Nei, það á ekki sérstaklega við um heyrn, bara almennt séð. Ég fæ ekki svo oft að eiga orðastað við ráðherra.
Svo var það hitt sem mig langar til að nefna og það er betri nýting á Heilsuveru til að eiga samskipti við sjúklinga. Ég hef stundum velt því fyrir mér, og við sjáum kannski ekki bein tengsl varðandi heyrnina, að fólk sé að skrá þarna inn og það sé þá hægt — ef menn eru að fara í próf hjá einkaaðila en ekki á heilsugæslustöð, að þeir aðilar geti fengið leyfi til að skrá inn á Heilsuveru til upplýsinga fyrir lækni viðkomandi.