157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

brottfall laga um Heyrnar- og talmeinastöð.

238. mál
[16:53]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég var ekki alveg með á nótunum þegar þingmaðurinn talaði um lyf og hjálpartæki út frá því máli sem hér er til meðferðar, um brottfall laga um Heyrnar- og talmeinastöð. Almennt get ég sagt að meðferð hjálpartækja, við erum að tala hér um hjálpartæki fyrir þá sem þarfnast ýmissa tækja til að bæta heyrn — en almennt gildir að umsýsla hjálpartækja er með ólíkindum flókin. Þar erum við með stórt verkefni í gangi um hvernig megi einfalda þá umsýslu, t.d. er mikil umsýsla í tengslum við mörg hjálpartæki sem eru ódýr og það er augljóslega ekki snjallt fyrir ríkið að koma málum fyrir með þeim hætti. Það sem ég vil segja á þessu stigi er að það er sérstakur starfsmaður frá 1. september sem starfar í ráðuneytinu til að greina sérstaklega hvernig við viljum hafa umsýslu hjálpartækja og greiðsluþátttöku til framtíðar.

Varðandi hitt atriðið þá er það alveg hárrétt að til þess að geta sinnt heilbrigðisþjónustu er skilyrði að færa sjúkraskrá. Þar þarf að sækja eða tilkynna rekstur til embættis landlæknis og koma sér upp aðstöðu til að skrá. Heilsuvera hefur ekki verið notuð til að skrá greiningar og slíkt heldur er hún fyrst og fremst notuð til upplýsinga, til lyfjaendurnýjana o.s.frv. Ég sæi kannski fyrir mér önnur sjúkraskrárkerfi sem kæmu inn þarna. Lykillinn er sem sagt að hafa staðfestan rekstur frá embætti landlæknis.