endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 43/1999, um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. Markmið laganna frá setningu þeirra árið 1999, fyrir rúmlega aldarfjórðungi, hefur verið að stuðla að eflingu innlendrar menningar og kynningar á sögu landsins og náttúru með tímabundnum stuðningi við kvikmyndir og sjónvarpsefni sem framleitt er hér á landi.
Með gildistöku laganna fyrir síðustu aldamót varð heimilt að endurgreiða úr ríkissjóði hlutfall af framleiðslukostnaði sem fellur til vegna framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis hér á landi. Rétt er að nefna það í upphafi að þessi heimild fellur niður um áramótin ef ekki er framlengt.
Með frumvarpinu er lögð áhersla á fögur markmið. Þau eru að skýra einstök ákvæði, bæta nýtingu þeirra fjármuna sem fara til endurgreiðslna, auka fyrirsjáanleika í útgjöldum ríkissjóðs, gera barna- og unglingaefni hærra undir höfði, m.a. til að styðja við íslenska tungu, og að framlengja kerfið eins og áður sagði. Ef ekkert er aðhafst rennur tímabundið endurgreiðslukerfi til kvikmyndagerðar að óbreyttu út 31. desember 2025 sem myndi skapa mikinn ófyrirsjáanleika fyrir greinina. Með frumvarpinu er því lagt til að framlengja kerfið um þrjú ár til að tryggja íslenskri kvikmyndagerð áframhaldandi forsendur til framleiðslu, hvort sem er eigin frumsköpun eða þátttaka íslensks fagfólks í erlendum verkefnum sem koma til landsins. Þá er frumvarpinu ætlað að auka samkeppnishæfni kvikmyndagerðarfólks á Íslandi og efla íslenska menningu og tungu með aukinni kvikmyndaframleiðslu. Í bígerð er líka að hefja vinnu við heildarendurskoðun á kerfinu á næstu mánuðum og ég kem að því síðar í ræðunni.
Helstu breytingar sem eru lagðar til í frumvarpinu eru eftirfarandi: Í frumvarpinu er lagt til að 2. málsliður 3. mgr. 2. gr. falli brott. Þar er mælt fyrir um með hvaða hætti laun og verktakagreiðslur geti talist framleiðslukostnaður. Það virðist sem núverandi löggjöf sé ekki nægilega afdráttarlaus um að kostnaður sem felur í sér laun og verktakagreiðslur sem hafa ekki verið skattlagðar á Íslandi geti talist til framleiðslukostnaðar í skilningi laganna. Framleiðslukostnaður sem verður til innan EES getur verið mjög stór þáttur framleiðslunnar og jafnvel grundvöllur fyrir því að framleiðslan verði að veruleika. Með breytingunni geta umsækjendur því áfram sótt um endurgreiðslur af framleiðslukostnaði vegna launa og verktakagreiðslna sem falla til innan EES, Grænlands og Færeyja að uppfylltu því skilyrði að meira en 80% af heildarframleiðslukostnaði falli til hér á landi. Þetta er í rauninni óbreytt frá því sem var en það er verið að hnykkja á þessu ákvæði og gera það skýrara. Þetta hefur lengst af verið túlkun endurgreiðslunefndarinnar en síðustu mánuði hefur verið skipt um kúrs.
Eins og ég nefndi áðan bera gildandi lög þess merki að það hafi oft verið breytt frá gildistöku þeirra og í lögin skorti nánari hugtakaskilgreiningar. Það hefur verið bent á vissan óskýrleika í lögunum sem hefur haft í för með sér ólíkan skilning af hálfu nefndar um endurgreiðslur og umsækjenda. Því er lagt til að við bætist ný málsgrein um að með heildarframleiðslukostnaði sé átt við heildarframleiðslukostnað kvikmyndar eða sjónvarpsefnis, óháð því hvar hann fellur til. Skilgreiningin mun draga úr vafamálum sem geta komið upp þegar ólíkur skilningur umsækjenda og umsýsluaðila er um hugtakanotkun.
Í þriðja lagi er lagt til að aðalframleiðslutímabil verkefnis skuli hefjast innan árs frá dagsetningu vilyrðis um endurgreiðslu. Það er mikilvægt fyrir ríkissjóð, nefnd um endurgreiðslur og Kvikmyndamiðstöð Íslands sem umsýslar endurgreiðslukerfið að meta fjárþörf kerfisins eins vel og hægt er hverju sinni. Með útgáfu vilyrðis til kvikmynda- eða sjónvarpsþáttagerðar fer á sama tíma fram mat á fjármagnsþörf ríkisins. Með málsgreininni er umsækjanda falið að tilkynna nefnd um endurgreiðslur um hvenær aðalframleiðslutímabil verkefnisins hefst og senda rökstudda beiðni til nefndarinnar um framlengingu sé þess þörf. Sé það ekki gert fellur vilyrðið sjálfkrafa úr gildi. Þessu fyrirkomulagi er ætlað að einfalda eftirfylgni Kvikmyndamiðstöðvar Íslands með fjárþörfum kerfisins og hvetja umsækjendur til að sækja um vilyrði innan þess tímaramma sem raunhæft er að aðalframleiðslutímabil verkefnis geti hafist. Nefnd um endurgreiðslur er heimilt að veita framlengingu einu sinni ef raunhæft er að aðalframleiðslutímabil geti hafist innan árs frá beiðni um framlengingu. Að auki er vísað til 5. mgr. 4. gr. laganna um að sé framleiðslu kvikmyndar eða sjónvarpsefnis ekki lokið innan þriggja ára frá dagsetningu vilyrðis falli vilyrðið einfaldlega úr gildi.
Í þeim tilfellum sem nefnd um endurgreiðslur veitir framlengingu á vilyrði skal taka afstöðu til 2. málsliðar 5. mgr. 4. gr. laganna og mæla fyrir um hvenær rétt sé að framleiðslu kvikmyndar eða sjónvarpsefnis sé lokið með hliðsjón af framlengingu á upphafi aðalframleiðslutímabils. Annars væri ekki sanngjarnt að ætlast til þess að framleiðslu verkefnisins væri lokið innan árs frá upphafi aðalframleiðslutímabils vegna þess að framlengingin gerir það að verkum að tímabilið getur hafist allt að tveimur árum eftir dagsetningu vilyrðis.
Í fjórða lagi er lagt til að endurgreiðslur til verkefna þar sem áætluð er eða endanleg heildarendurgreiðsla er yfir 300 millj. kr. verði ekki greiddar út fyrr en einu og hálfu ári eftir að umsókn um endurgreiðslu er lögð fram hið fyrsta. Í reglugerð nr. 450/2017 er nefnd um endurgreiðslur auk þess heimilt að fresta endurgreiðslum sem kunna að vera umfram fjárveitingu Alþingis hverju sinni.
Tilefni þessa er að sú staða hefur komið upp að sótt hefur verið um endurgreiðslu og útborgun hennar vegna stórra fjárfrekra kvikmyndaverkefna með stuttu millibili. Það er því eðlilegt að setja viðmið um lágmarkstíma sem skal líða milli þess sem umsókn um endurgreiðslu berst og þar til sækja má um útborgun, með hliðsjón af umfangi verkefna. Þar sem verkefni af þessari stærðargráðu fela í sér miklar skuldbindingar af hálfu hins opinbera er ekki óeðlilegt að gera auknar kröfur um fyrirsjáanleika í umsóknarferlinu og útborgun endurgreiðslunnar. Þetta hefur að auki í för með sér betra eftirlit með verkefnum og betri dreifingu fjárhagslegrar skuldbindingar ríkissjóðs.
Í fimmta lagi bætist við ný málsgrein um að nefnd um endurgreiðslur skuli gæta þess að umsagnir uppfylli skilyrði ákvæða 54. gr. reglugerðar framkvæmdastjórnar ESB þar sem tilgreindir eru tilteknir flokkar aðstoðar sem samrýmast innri markaðnum til beitingar á 107. og 108. gr. sáttmálans og að nefndin teljist vera veitingarvald í skilningi reglugerðarinnar. Með breytingunni er verið að bregðast við athugasemd ESA sem kom fram við hefðbundna skoðun ESA á ríkisstyrkjakerfum. Til bráðabirgða var brugðist við athugasemdinni með breytingu á reglugerð nr. 45/2017 og vísunin er nú lögfest eins og kröfur ESA gerir ráð fyrir.
Í sjötta lagi er skortur á innlendu barna- og ungmennaefni. Fjármögnun á slíku efni er erfiðari og þótt börn og ungmenni séu alþjóðlegur markhópur hefur reynst erfitt af ýmsum ástæðum að tryggja dreifingu á íslensku barna- og ungmennaefni utan landsteinanna. Þar má einna helst nefna að talsetningar og staðfærslur á íslensku eru kostnaðarsamar, menningarleg sérkenni flytjast misvel milli þjóða og mikil samkeppni er þegar til staðar við rótgróið og alþjóðlegt barna- og ungmennaefni frá stærri markaðssvæðum. Í frumvarpinu er því lagt til að styðja sérstaklega við barna- og ungmennaefni og það er gert með því að hlutfall endurgreiðslu framleiðslukostnaðar er breytt úr 25% í 35% af framleiðslukostnaði, óháð stærð verkefnisins.
Að lokum er lagt til, eins og áður er sagt, að framlengja kerfið til ársins 2028.
Virðulegur forseti. Tillögur frumvarpsins eru í samræmi við kvikmyndastefnu Íslands til ársins 2030 sem var gefin út árið 2020 en þar er fjallað um endurgreiðslur til kvikmyndagerðar í aðgerð A sem fellur undir markmið 3. Aðgerðin fjallar um samkeppnishæft endurgreiðslukerfi og kerfið þykir einfalt, skilvirkt og áreiðanlegt gagnvart kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerð á Íslandi. Stefnt verður að því að varðveita kosti þess en þróa það þó áfram á þann hátt að það standist alþjóðlega samkeppni á hverjum tíma.
Kvikmyndagerð er sú listgrein sem er hvað dýrust í framleiðslu, kannski vegna þess að hún sameinar ekki bara allar listgreinar sem til eru, allt frá tónlist, myndlist, hönnun og leiklist, heldur þarf fjölbreytta þekkingu og mannskap úr öðrum greinum til að kvikmyndaverk geti raungerst. Við þurfum smiði, við þurfum rafvirkja, við þurfum hljóðmenn, matreiðslufólk, bílstjóra og annað. Allt er þetta dæmi um nauðsynlegt starfsfólk úr öðrum greinum sem kemur með einum eða öðrum hætti að framleiðslunni á ólíkum tíma hennar. Það skemmtilega við þessa grein er að hún hefur dreifst nokkuð lífrænt um allt land þannig að þetta hefur haft verulega góð áhrif á samfélög eiginlega um allt land og hefur tryggt heilsársstörf í greininni en verið mjög góð búbót líka fyrir þessar aukaatvinnugreinar sem hafa komið að einstökum verkefnum. Þarf nú ekkert annað en að horfa á þessar stóru seríur sem hér hafa verið sýndar, bæði innlendar og erlendar, sem verða ekki til af sjálfu sér.
Kvikmyndaverkefnin hafa verið fjölbreytt eins og þau eru mörg, allt frá heimildarmyndum um sögulega viðburði eða einstaklinga og barnaefni fyrir yngstu kynslóðina til stórmynda og þáttaraða sem slá í gegn hér heima en fara líka stundum sigurför um allan heim. Það er áhugavert að sjá gögn, m.a. frá ferðaþjónustunni, sem sýna okkur að frá 2020–2024 voru 7.500 umfjallanir tengdar Íslandi sem tökustað eða aðrar tengdar umfjallanir. Þegar ferðamenn eru spurðir hvernig þeir fengu þá hugmynd að koma til Íslands nefna 30% ferðamanna að einn þáttur þess hafi verið að þau hafi séð þátt sem hafi verið framleiddur á Íslandi, gerst á Íslandi, í kvikmyndum eða sjónvarpi. 30% af framleiðslukostnaði hefðbundinna verkefna í kvikmyndagerð rennur raunar til ferðaþjónustufyrirtækja og dreifast, eins og ég sagði áðan, mjög vel um landið. Þetta er því sannarlega grein sem ekki bara hefur styrkt sig sem sjálfstæð atvinnugrein heldur líka haft mjög góðar afleiðingar fyrir aðrar greinar sem hafa haft þá kosti einnig að breyta litlum brothættum byggðum yfir í perlur, allt í kringum landið.
Þessi verkefni eru af öllum stærðum og gerðum og það er ekki hægt að ætlast til þess að öll verkefni verði þannig að þau slái í gegn og raki inn áhorfi. Það þarf líka að vera svigrúm fyrir minni og tilraunakenndari kvikmyndagerð, einfaldlega til þess að við eignumst listafólk og fólk sem styður það í sinni vinnu í kringum þetta. Það er mikilvægt að listin hafi þetta svigrúm til þróunar og sköpunar svo það byggist upp þekking innan greinarinnar hér á landi í samræmi við upphafleg markmið laganna. Það er ekki hægt að sjá annað þegar maður skoðar sögu greinarinnar frá því að stuðningskerfið var sett á laggirnar árið 1999 en að þetta hafi algjörlega tekist. Margir hafa spurt: Eigum við ekki bara að styðja við innlendu kvikmynda- og sjónvarpsframleiðsluna? En þá segir maður á móti: Þessi stóru verkefni sem hingað hafa komið inn og skapað ótrúlega mikla og stóra veltu í hagkerfi okkar, þó að þau fyrirtækin fái eitthvað til baka, hafa ekki síst stuðlað að þeirri þekkingu sem hefur orðið til í greininni. Þau hafa einnig orðið til þess að tækjabúnaður, aðstæður, kvikmyndaver og annað hefur orðið til, þannig að það er ekkert hægt að gefa þessu 26 ára kerfi neina aðra dóma en að markmið laganna hafi sannarlega skilað árangri. Svo geta menn endalaust deilt um hvað eigi að styðja, hvað eigi að styrkja. Við styðjum nú með einum eða öðrum hætti u.þ.b. við allar atvinnugreinar í landinu og þetta er bara eitt form fyrir slíkan stuðning sem sannarlega mætir líka væntingum og óskum ungs fólks sem vill kannski síður sækja í þessar hefðbundnu greinar sem hafa gert okkur bjargálna og eru mjög mikilvægar. Þarna eru þekkingargreinar og listgreinar sem eru vinsælar hjá ungu fólki og sannarlega gaman að tónlistarmenn, myndlistarmenn og fatahönnuðir, svo maður nefni þrjár greinar sem hefðu öðrum kosti verið í basli og fengið stök verkefni, geti kannski verið að vinna á heilsársgrundvelli. Það skiptir gríðarlega miklu máli.
Svona rétt að lokum ætla ég að koma aftur að því sem ég nefndi, að þrátt fyrir að við leggjum til þriggja ára gildistíma á þessu frumvarpi þá höfum við ákveðið að það taki til starfa núna í nóvember starfshópur sem hafi það að heildarmarkmiði að fara í heildarendurskoðun á kerfinu. Það eru tækifæri til úrbóta og endurskoðunar, bæði þegar horft er til annarra endurgreiðslukerfa í heiminum en einnig bara vegna þess sem ég nefndi áðan, að það er búið að stagbæta þetta kerfi svo oft með einstökum breytingum og við þær aðstæður skapast alltaf sú hætta að það verði eitthvert innra ósamræmi sem leiði til að túlkun sé ekki eins augljós og hún þyrfti að vera í svona kerfi. En til þess að það sé hægt að fara í umfangsmiklar breytingar á kerfi eins og þessu, sem hefur verið í gildi í 26 ár, án þess að gera glappaskot sem geta jafnvel skemmt það, þá verða að liggja fyrir greiningar og mat og við verðum að sýna þolinmæði til þess. Það verður sem sagt hlutverk þessa starfshóps að greina mögulegar breytingar á kerfinu í samráði við fjármála- og efnahagsráðuneytið og kvikmyndagreinina sjálfa, og það skiptir ekki síst máli. Fyrirhugað er að leggja fram tillögur að breytingum fyrir 1. mars 2026 sem geti svo orðið að nýju frumvarpi um heildarendurskoðun á kerfinu. Meðal þess sem verður auðvitað skoðað er með hvaða hætti það er yfir höfuð hægt að skapa meiri fjárhagsfyrirsjáanleika, m.a. fyrir þingmenn hér inni.
Meðfram gildistöku laganna verður reglugerð nr. 450/2017, um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, líka breytt til að koma til móts við tillögur frumvarpsins. Að auki eru ýmis tækifæri sem felast í breytingum á reglugerðinni í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar og skýrari viðmið. Sem dæmi mætti skoða hvort tilefni sé til breytinga á verkefnamati út frá því hvaða kröfur verkefni þurfa að uppfylla með tilliti til menningar eða náttúru annars vegar og framleiðslunnar hins vegar. Þetta er auðvitað mat sem þarf alltaf að vera vakandi yfir vegna þess að tilgangurinn er einmitt líka að styðja við aðrar mikilvægar atvinnugreinar á Íslandi. Það eru líka tækifæri til að greina hvort hægt sé að gera ítarlegri kröfur til fjárhagsupplýsinga sem umsækjandi skilar ef breytingar verða á kostnaðaráætlun, og svo mætti lengi telja.
Að öllu slepptu tel ég að stjórnvöldum hafi á síðasta aldarfjórðungi tekist að stíga nokkuð farsæl skref til að styðja við nýja atvinnugrein sem ekki er bara stórmerkileg í sjálfu sér heldur hefur skapað fjölda fólks úr öðrum atvinnugreinum, sem gefa kannski ekki fasta vinnu, möguleika á að stíga inn og skapa sér lífsviðurværi. Auk þess hefur þetta hefur verið kærkominn stuðningur í sérstaklega smærri byggðarlögum við aðrar atvinnugreinar sem hafa komið að umgjörð myndanna; pípulagningamenn og smiðir sem að öðru jöfnu vinna við iðnfyrirtæki þorpsins eða gera við heima hjá fólki hafa fengið stór verkefni sem tengjast þessari kvikmyndaframleiðslu.
Ég er ánægður með að ná að mæla fyrir þessu núna og hvet þingheim til að skoða þetta vel og málefnalega. Ég veit að það eru auðvitað sjónarmið sem ég geri ekki lítið úr og er allt í lagi að hér séu rædd. Ég veit líka að það er fólk hér inni, og meira að segja í þessum sal, sem þekkir þetta kerfi nógu vel til að átta sig á því hvaða gagn það hefur gert. Ég vonast til þess að umræðan verði efnisrík og góð og mælist til þess að lokinni þessari umræðu að frumvarpi þessu verði vísað til hv. atvinnuveganefndar til frekari umfjöllunar.