157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

263. mál
[17:17]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna á mikilvægu máli sem við í Framsókn styðjum og höfum alltaf gert, alveg frá því að það var sett á laggirnar 1999 af framsóknarráðherrum sem þá voru í iðnaðarráðuneytinu. Alla tíð síðan höfum við verið hlynnt því að byggja upp þessa atvinnugrein með því að taka þátt í þessari alþjóðlegu samkeppni um að bjóða einhvers konar ívilnanir til þess að tryggja að hingað komi fjármagn og fólk sem ýtir undir að hér geti verið fjölbreyttur hópur starfsfólks, miklu meira en leikstjórar og leikarar eins og margir halda, þetta er miklu flóknari heimur. Það sem mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra út í var að þar sem þetta hljómar sem meira og minna einhverjar bókhaldsbreytingar, þ.e. að færa eitthvað til hingað og þangað og það er svolítið flókið að skilja það: Verður að mati ráðherrans kerfið eftir sem áður jafnskilvirkt og það var og er að mati ráðherrans verið að þrengja að einhverju leyti þann hóp sem getur sótt um þetta eða víkka hann?