157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

263. mál
[17:19]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, ég kannast við það að Framsóknarflokkurinn hefur verið sterkur bakhjarl þessarar greinar og trúi að það sé ekki síst vegna þess að sá flokkur hefur skilning á því að það skiptir máli að það sé sterkt atvinnulíf um allt land. Nei, þessar breytingar munu ekki þrengja að neinum hópi, þær munu t.d. ívilna þeim sem gera barna- og unglingamyndir. Þær munu tryggja það að sú túlkun sem var alveg fram á mitt þetta ár varðandi endurgreiðslur vegna framleiðslu á EES-svæðinu verði með þeim hætti, og það held ég að kvikmyndageirinn sé ánægður með. Kannski má segja að það sé hins vegar verið að tryggja það að komi inn risaverkefni, gjarnan þá með sterkum fjárhagslegum bakhjarli, þá sé ríkinu heimilt að taka sér lengri tíma í að greiða þær fjárhæðir til baka.