157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

263. mál
[17:22]
Horfa

Jón Gnarr (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil bara nota tækifærið til að þakka Alþingi fyrir að standa að svona góðum verkefnum. Ég geri ráð fyrir því að hæstv. ráðherra hafi verið að vísa til mín í máli sínu áðan þegar hann sagði að það væri þingmaður í salnum sem hefði reynslu af þessu máli. En það að Alþingi styðji við sjálfstæða sjónvarps- og kvikmyndagerð á Íslandi með þessum hætti gerir okkur kleift að framleiða kvikmyndir og sjónvarpsefni, það væri mjög erfitt án þess, og sú nýlunda í þessu frumvarpi, sem ég er líka ánægður með, er áherslan á barnaefni og mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort það kæmi til skoðunar að talsetja á íslensku barnaefni sem jafnvel væri framleitt hér á Íslandi en á erlendri tungu.