157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

263. mál
[17:28]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Mér hefur reyndar alltaf þótt heitið á þessum lögum kannski ekki nógu lýsandi fyrir efni þeirra og ég held að það hafi villt svolítið fyrir um í umræðunni. Ég held að margir haldi að verið sé að endurgreiða mönnum, t.d. erlendum aðilum, einhverjar skattgreiðslur sem hafa fallið hér til. Það hefði kannski verið meira upplýsandi ef þessi lög hétu lög um ríkisstyrki til kvikmyndaframleiðslu á Íslandi. Það er auðvitað um það að ræða í þessu máli.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um ábendingar sem hafa komið fram, eins og frá OECD og í raun ítrekað frá fjármálaráði, um að metin verði raunveruleg endanleg efnahagsleg áhrif af þessum styrkveitingum. Í núgildandi fjármálaáætlun, sem þessi ríkisstjórn lagði fram, sé ég að boðuð var bót og betrun í þessu og að endurskoðað yrði fyrirkomulag til að tryggja markmið með endurgreiðslunni. (Forseti hringir.) Þetta frumvarp lýtur ekki beint að því en hyggst ráðherrann einhvern veginn mæta þessum ábendingum OECD (Forseti hringir.) og fjármálaráðs um meira gagnsæi í þessum efnum?

(Forseti (EÁs): Forseti minnir hv. þingmenn á að ræðutími er ein mínúta. )