157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

263. mál
[17:29]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, ég held að þessi endurskoðun sem ég ræddi áðan muni alveg örugglega fjalla um það að einhverju leyti. Þar verða líka fulltrúar úr fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Ég vil þó benda fjármála- og efnahagsráðuneytinu og fólkinu sem þar vinnur, ef það er að hlusta, á það að fá styrkjakerfi og stuðningskerfi við atvinnuvegi á Íslandi hafa fengið jafn margar skýrslur gerðar um sig eins og einmitt þetta. Þar ber allt að sama brunni. Ef fólk er ósammála því sem kemur fram í þessum fjölmörgu skýrslum sem hægt er að vitna í þá væri réttast að svara hlutunum efnislega og tiltaka hvað það er sem er rangt í þeim. Mér finnst þetta sannfærandi en svo má á endanum aldrei gleyma því að hér er ekki um iðnaðarframleiðslu að ræða eingöngu eða fyrst og fremst. Þetta er auðvitað listgrein. Hér er verið að fjalla um menningu Íslands og sem slíkt þá verður það kannski aldrei mælt neitt mjög vel efnahagslega.