157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

263. mál
[17:30]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að fara ekki með frasann sem gjarnan heyrist hér að hver króna sem lögð er í þessar endurgreiðslur skili sér ferfalt eða fimmfalt eða tífalt til baka. Sú hagfræði gengur auðvitað ekki upp. Hæstv. ráðherra nefndi t.d. þessa Olsberg-skýrslu sem nefnd er í greinargerðinni. Í skýrslu fjármálaráðs í apríl síðastliðnum, í álitsgerð fjármálaráðs fyrir árið 2026–2030, er enn þá verið að benda á að það vanti raunverulegt mat á þessum aðgerðum og hverju þær skili. Því hefur líka verið beint til stjórnvalda að binda þessi útgjöld sérstaklega við mælanleg markmið. Ég verð líka að segja að mér finnst að það hefði þurft að vera í greinargerðinni hér upplýsingar um kostnaðinn á þessu ári. Ef ég man rétt, hæstv. ráðherra leiðréttir mig þá, þá held ég að gert sé ráð fyrir um (Forseti hringir.) 6 milljörðum í þetta á næsta ári.